Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

177. fundur
16. júlí 2015 kl. 16:00 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Valdemar Einarsson formaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Reynir Arnarson aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson 1. varamaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Karl Sigurður Guðmundsson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Borun eftir sjó til eflingar landvinnslu Skinneyjar-Þinganess hf
Málsnúmer 201506054
Björn Ingi fór yfir erindi frá Skinney Þinganesi um leit þeirra að hreinum sjó.
Hafnarstjórn heimilar áframhaldandi leit að hreinum sjó innan marka hafnarsvæðis. Hafnarstjóra falið að fylgjast með framkvæmdum og óska eftir samstarfi ef kemur til frekari framkvæmda.
2.
Viðhaldsdýpkun 2015
Málsnúmer 201504024
Sigurður Guðmundsson fór yfir stöðu mála. Búið er að bjóða út aftur viðhaldsdýpkun innan hafnar 2015 til 2018. Útboðsfrestur er til 28.júlí kl 14:15.
3.
Innsiglingin um Hornafjarðarós
Málsnúmer 201505004
Eitt tilboð barst í dýpkun á Grynnslum uppá 58,775 milljónir. Kostnaðaráætlun er 33.630 milljónir. Í gangi eru viðræður við tilboðsgjafa á grunni kostnaðaráætlunar Vegagerðarinnar. stefnt er á að framkvæmdin hefjist 20.júlí og verði lokið 10.ágúst.
Hafnarstjórn leggur þunga áherslu á að samningar náist sem fyrst á grunni kostnaðaráætlunar og framkvæmdir hefjist hið fyrsta. Hafnarstjóri kynnti samskipti sín við Vegagerðina, þingmenn og ráðherra vegna málsins.
4.
Seatrade Hamburg 2015
Málsnúmer 201507028
Seatrade Hamburg haldin 9-11 sept, eigum við að taka þátt ?
Sigurður Guðmundsson kynnti málið. Þann 9 til 11. september n.k. verður Seatrade skemmtiferðskipasýningin haldin í Hamborg. Kostnaður á fyrirtæki er 220 þúsund, þátttakendur sjá sjálfir um að bóka/greiða flug og hótel.
Hafnarstjórn sammála að taka þátt í sýningu í Seatrade 2015. Gert er ráð fyrir þátttöku í einni sýningu í fjárhagsáætlun hafnarinnar.
Hafnarstjóra og forstöðumanni falið að vinna áfram að málinu.
5.
Hafnafundur í Hafnarfirði 2015
Málsnúmer 201507029
Hafnafundur 2015 verður haldinn í Hafnarfirði 28 ágúst, eigum við að taka þátt ?
Sigurður kynnti málið.
Hafnarstjórn samþykkir að tveir fulltrúar sæki fundinn.
6.
Rafmagn á Austurfjörum
Málsnúmer 201507030
Ljósavél á Austurfjörur.
Sigurður Guðmundsson fór yfir stöðu mála. Rafall á vél á austurfjörum eyðilagðist í vor. búið er að vera að skoða hvað er mögulegt í stöðunni. Heimtaug frá RARIK, kaup á nýrri vél og útbúa siglingaljósin með led perum.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna að málinu.
7.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Málsnúmer 201211036
Reynir hafði orð á hvort hafnarstjórn ætlaði ekki að fara og skoða Hellisvitan að loknum framkvæmdum síðasta árs.