hafnarstjórn Hornafjarðar
178. fundur
20. ágúst 2015
kl.
16:00
-
18:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Valdemar Einarsson
formaður
Sigurður Einar Sigurðsson
varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Reynir Arnarson
aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Karl Sigurður Guðmundsson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Viðhaldsdýpkun 2015
Björn Ingi fór yfir stöðu mála. Eitt tilboð barst frá Dýpkunarfélaginu Trölla að upphæð 124,1 milljón króna. Kostnaðaráætlun hljóðar uppá 99 milljónir.
Hafnarstjórn lýsir yfir mikilli óánægju með ferli þessa máls. Hafnarstjóri hefur óskað eftir að fá kostnaðaráætlanir vegna þessara tveggja útboða á viðhaldsdýpkun en þeirri ósk hefur ekki en verið svarað. Rekstur og viðhald hafnarinnar er á ábyrgð hafnarstjórnar í umboði sveitarstjórnar og því eðlileg krafa að orðið sé við ósk um upplýsingar vegna útboðsmála.
Hafnarstjórn óskar eftir að Vegamálastjóri og yfirmaður siglingasviðs Vegagerðarinnar komi til fundar við Hafnarstjórn hér á Höfn sem fyrst.
Hafnarstjórn lýsir yfir mikilli óánægju með ferli þessa máls. Hafnarstjóri hefur óskað eftir að fá kostnaðaráætlanir vegna þessara tveggja útboða á viðhaldsdýpkun en þeirri ósk hefur ekki en verið svarað. Rekstur og viðhald hafnarinnar er á ábyrgð hafnarstjórnar í umboði sveitarstjórnar og því eðlileg krafa að orðið sé við ósk um upplýsingar vegna útboðsmála.
Hafnarstjórn óskar eftir að Vegamálastjóri og yfirmaður siglingasviðs Vegagerðarinnar komi til fundar við Hafnarstjórn hér á Höfn sem fyrst.
2.
Innsiglingin um Hornafjarðarós
Lagður fram verksamningur vegna dýpkunar á Grynnslum. Verkinu er lokið og reikningur frá Björgun ehf er kominn á hafnarsjóð. Hafnarstjóri upplýsti að búið er að hafa samband við ráðherra vegna kostnaðar vegna málsins, ráðherrann er að skoða málið svara er að vænta á næstunni. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við að reikningur frá Björgun ehf verði greiddur fyrir eindaga en ítrekar fyrri bókun sína um að þessi kostnaður greiðist að öllu leyti úr ríkissjóði.
3.
Samningur um afnot af AIS upplýsingum
lagður fram samningur sem gerður hefur verð við Neyðarlínuna vegna aðgangs að upplýsingum úr AIS kerfi sem nýtist á höfninni. Hafnarstjórn samþykkir framlagðan samning.
4.
Rafmagn á Austurfjörum
Hafnarstjóri og starfsmenn hafa farið yfir hvaða valmöguleikar standa til boða. Orkunotkun á austurfjörum er um 550w. Þær vélar sem standa til boða eru um 5,6kW sem er óhentug stærð á vél miðað við orkuþörf. Einnig hafa verið í skoðun aðrir orkugjafar eins og vindmylla og sólarsellur kostnaður við uppsetningu á slíkum búnaði sem miðar við að ekki verði nauðsynlegt að hafa vél á fjörunum er um 3 milljónir króna. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu og telur áhugavert að skoða umhverfisvæna orkugjafa.
5.
Deiliskipulag höfnin/Ósland
Óskað er eftir umsögn Hafnarstjórnar um nýtt deiliskipulag hafnarinnar. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við deiliskipulagstillöguna.
6.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Sigurður Guðmundsson þakkaði fyrir samstarfið við Hafnarstjórn undanfarin ár. Sigurður lætur af störfum í lok september. Hafnarstjórn þakkar Sigurði fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar á nýjum vetvangi. Sigurður Guðmundsson vék af fundi eftir umræður um þennan lið í dagskrá.
7.
Starfsmannamál Hornafjarðarhafnar 2014
Hafnarstjóri fór yfir stöðu mála vegna ráðningar í starf forstöðumanns Hornafjarðarhafnar. Hafnarstjórn leggur til að leitað verði til Vignis Júlíussonar um að taka að sér starfið.