hafnarstjórn Hornafjarðar
180. fundur
8. október 2015
kl.
16:00
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Valdemar Einarsson
formaður
Sigurður Einar Sigurðsson
varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Reynir Arnarson
aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Staða Framkvæmda Hafnarinnar 2015
Farið yfir stöðu þeirra framkvæmda sem eru í gangi
Hafnarstjórn óskar Vigni Júlíussyni til hamingju með að hafa tekið við stöðu forstöðumanns Hornafjarðarhafnar.
Vignir fór yfir stöðu framkvæmda og einnig rætt um hugmyndir að framkvæmdum 2016
Vignir fór yfir stöðu framkvæmda og einnig rætt um hugmyndir að framkvæmdum 2016
2.
Viðhald á bryggjum - viðgerðir á þili
Vignir skýrði frá samskiptum við Köfunarþjónustuna ehf. Núverandi dýpi við bryggjuna er 6 metrar. Einnig rætt um kostnað við viðgerð á Miklagarðsbryggju á móti kostnaði við nýja bryggju. Starfsmönnum falið að kanna hvort möguleiki er að koma nýrri bryggju við Miklagarð inná framkvæmdaráætlun siglingarsvið Vegagerðarinnar. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að ganga frá samningi vegna viðgerðar á Bræðslubryggju.
3.
Rafmagn á Austurfjörum
staða
Björn Ingi upplýsti að unnið er að því að fá verð í búnað. Verið er að skoða búnað frá öðrum aðila sem er talsvert ódýrari í innkaupum. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
4.
Fjárhagsáætlun Hornafjarðahafnar 2016
Fyrstu drög að fjárhagsáætlun hafnarinnar lögð fram og rætt um framkvæmdir næsta árs.
Björn Ingi fór yfir fyrstu drög að fjárhagáætlun hafnarinnar.
5.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Vignir fór yfir hugmyndir að doktorsverkefni um rannsóknarverkefni sem hollenskur prófessor mun halda utanum. Þetta doktorsverkefni myndi skila dýpri skilning á sandflutningi á og við Grynnslin. Einhver kostnaður vegna ferða og uppihalds doktorsnemans gæti fallið á höfnina. Hafnarstjórn sammála um að þetta sé áhugavert verkefni.