Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

181. fundur
12. nóvember 2015 kl. 16:00 - 19:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Valdemar Einarsson formaður
Sigurður Einar Sigurðsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Reynir Arnarson aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson Hafnarstjóri Hornafjarðarhafnar
Dagskrá
1.
Seatrade Hamburg 2015
Málsnúmer 201507028
Árdís Erna Halldórsdóttir atvinnu- og ferðamálafulltrúi mætti á fundinn og fór yfir ferð sem farin var til Hamburg.
Farið yfir gildi þess að vera aðili að Cruise Iceland. Almenn umræða um þátttöku hafnarinnar í Cruise Iceland. Hafnarstjórn er sammála um að taka áfram þátt í starfi Cruise Iceland. Gagnvart kynningaferðum erlendis verði það skoðað í hvert skipti eftir að áhersla sýningar liggur fyrir. Hafnarstjórn óskar eftir að starfsmenn kanni mögulegan áhuga aðila í afþreyingaferðaþjónustu á frekari þátttöku í þessu verkefni.
2.
Fjárhagsáætlun Hornafjarðahafnar 2016
Málsnúmer 201510014
Farið yfir líkan að fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2016. líkanið gerir ráð fyrir óbreyttum tekjum miðað við árið 2015. rekstrarkostnaður hækkar um 10 milljónir á milli ára er það að stærstum hluta vegna kjarasamninga. Áætlunin gerir ráð fyrir 15 milljónum í framkvæmdir á árinu 2016.
Farið yfir stöðu framkvæmda ársins 2015. Hafnarstjórn samþykkir að forstöðumaður endurnýji bíl hafnarinnar. Heimilt verður að leggja allt að 2,5 milljónir með eldri bíl og rúmast það innan framkvæmdaramma ársins 2015.
Farið yfir framkvæmdir árisins 2016. Hafnarstjórn felur starfmönnum að kanna kostnaði við lagfæringar í Hvammskróknum með aðstöðu fyrir smábáta í huga. Einnig að ræða við aðila sem boðist hafa til að vinna umhverfisstefnu með höfninni.
Hafnarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun og vísar henni til annarar umræðu í bæjarstjórn.
3.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201305011
Lagt fram og nefndarmenn hvattir til að koma með ábendingar.
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við stefnuna en bendir á að til standi að vinna umhverfisstefnu hafnarinnar og mikilvægt er að þessar stefnur samræmist. Hafnarstjórn óskar eftir að kannað verði hvort mögulegt er að vinna þessar stefnur saman eða sem eina.
4.
Umhverfisstefna Hornafjarðarhafnar
Málsnúmer 201509028
Lögð fram tilboð frá Alta og Náttúrustofu Suðausturlands.
vísað til bókunar með umhverfisstefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Ákvörðun um töku tilboða frestað.
5.
Framkvæmdaáætlun í umhverfismálum
Málsnúmer 201309021
Lagt fram og nefndarmenn hvattir til að koma með ábendingar.
Sigurður Einar benti á að í kafla 3.3 sem fjallar um lýðheilsa verði lögð áhersla á að nettengdur gasmælir verði ávalt staðsettur á Höfn.
6.
Starfsmannamál Hornafjarðarhafnar 2014
Málsnúmer 201409012
Sigfús Harðarson hefur óskað eftir að láta af störfum 30. apríl 2016. Hafnarstjórn samþykkir að auglýsa tvær stöður hafnsögumanna við Hornafjarðahöfn.
7.
Umsókn um leyfi til landnýtingar
Málsnúmer 201509140
Hafnarstjórn geri ekki athugasemd við áformin að uppfyltum öllum skilyrðum um slíkan rekstur. Nánar staðsetning á vagni ef til þess kemur verði í samráði við forstöðumann hafnar.
Vignir ræddi um leigu á svæði innan hafnarinnar undir gáma. Verið er að vinna drög að samningum