hafnarstjórn Hornafjarðar
182. fundur
18. desember 2015
kl.
16:00
-
17:27
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Valdemar Einarsson
formaður
Sigurður Einar Sigurðsson
varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Reynir Arnarson
aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Björn Ingi Jónsson
Hafnastjóri
Fundargerð ritaði:
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Dagskrá
1.
Jöklavagnar leyfi til að staðsetja veitingarvagn á lóð sveitarfélagsins
Hafnarstjórn geri ekki athugasemd við áformin að uppfyltum öllum skilyrðum um slíkan rekstur. Nánar staðsetning á vagni ef til þess kemur verði í samráði við forstöðumann hafnar.
2.
Rafmagn á Austurfjörum
Staða mála í uppsetningu og búnaði
Vignir upplýsti um stöðu verkefnisins. Mastur er komið á svæðið og mest allur annar búnaður. Stefnt er að því að setja þetta upp í næstu viku.
3.
Viðhaldsdýpkun 2015
Staða á viðhaldsdýpkun 2015
Vignir upplýsti að lokið er viðhaldsdýpkun innan hafnar. Dælt var rúmlega 53.000 rúmmetrum.
Hafnarstjórn samþykkir að gengið verði frá greiðslu samkvæmt samningi.
Hafnarstjórn samþykkir að gengið verði frá greiðslu samkvæmt samningi.
4.
Viðhald á bryggjum - viðgerðir á þili
Köfunarþjónusta gaf verð í viðgerð á staurum undir Bræðslubryggju í ársbyrjun 2015. Köfunarþjónustan óskaði eftir frest fram á haustmánuði til að vinna verkið. Hafnarstjórn samþykkti seinkunn á verki.
Vignir fór yfir mögulega vinnutilhögun vegna viðgerðar á staurum Bræðslubryggju. Hafnarstjórn heimila forstöðumanni að ganga til samninga við verktaka á grunni framlagðra gagna. Áætlaður verktími janúar til febrúar 2016.
5.
Framkvæmdir Hafnarinnar 2016
Vignir fór yfir framkvæmdaáætlun ársins 2016. Helstu verkefni eru viðgerð á Bræðslubryggju, grjótklæðning frá smábátaupptök í átt að Óslandsbryggju, smábátaaðstaða við Hvammskrókinn og timburverk á Vogarbryggju. Hafnarstjórn felur forstöðumanni hafnarinnar að kanna möguleika á lagfæringu eða endurbyggingu á Melatangabryggju.
6.
Seatrade Cruise Global Fort Lauderdale 2016
Undirbúningur fyrir cruise sýningar 2016 Sýning í Fort Lauderdale í USA dagana 14.- 17.mars 2016.Hafnirnar eru undanskildar viðveru á bás á Fort Lauderdale en býðst í staðinn að hafa fulltrúa á básnum. Þátttökugjald fyrirtækja eða hafna er 75.000 kr.Fulltrúi á Fort Lauderdale sýningunni verður framkvæmdastjóri Cruise Iceland, Eva Rún Michelsen.
Hafnarstjórn samþykkir þátttöku í sýningu Fort Lauderdale gjald fyrir er 75.000 kr.
7.
Starfsmannamál hafnarinnar
Vignir upplýsti að umsókn barst um auglýst starf hafnsögumanns við Hornafjarðarhöfn og unnið er að ráðningu.
8.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Sigurður Einar spurði út í leyfismál við viðhaldsdýpkun, hvar dælingarrör endar við Stapaklett og sandhaug sem myndast hefur við enda rörs. Vignir upplýsti að við fyrri dælingu hafa myndast haugar við enda dælurörs og þeir hafa horfið fljótlega eftir að dælingu er lokið.
2013 var sótt um leyfi til Umhverfisstofnunar vegna dælulagnar og dælingar. Sótt var um allt að 35.000 rúmmetra dælingu árlega í 5 ár samtals 175.000 rúmmetrar. Umhverfisstofnun gaf árið 2013 leyfi til 5 ára miðað við gefnar forsendur.
2013 var sótt um leyfi til Umhverfisstofnunar vegna dælulagnar og dælingar. Sótt var um allt að 35.000 rúmmetra dælingu árlega í 5 ár samtals 175.000 rúmmetrar. Umhverfisstofnun gaf árið 2013 leyfi til 5 ára miðað við gefnar forsendur.