Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

183. fundur
23. febrúar 2016 kl. 16:00 - 17:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Valdemar Einarsson formaður
Sigurður Einar Sigurðsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir aðalmaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Björn Ingi Jónsson Hafnastjóri
Fundargerð ritaði:
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Dagskrá
1.
Cruise Iceland 2016
Málsnúmer 201602031
Upplýsingar
Vignir Júlíusson upplýsti að gefa á út auglýsingabækling sem Ríki Vatnajökuls kemur að gagnaöflun í og mun birtast hjá Cruise Iceland.
2.
Ósk um rannsóknarvinnu Hornafjarðarós
Málsnúmer 201602068
Meistaranemi í Strandverkfræði
Vignir upplýsti um framvindu í verkefni sem hafnarstjórn samþykkir þátttöku í á síðasta ári. Um er að ræða doctorsverkefni um frekari rannsóknir á innsiglingunni um Hornafjarðarós.
3.
Innsiglingin um Hornafjarðarós
Málsnúmer 201505004
Staða og horfur með innsiglinguna
Hafnarstjórn leggur áherslu á áframhaldandi markvissum aðgerðum til bóta vegna innsiglingar við Hornafjarðarós. Hafnarstjórn telur skynsamlegt að byggður verði varnargarður frá Hvanney yfir í Einholtskletta til að minnka sandburð inná Grynnslin. Það er augljóst að ef ekki verður af neinum framkvæmdum mun það ástand sem skapaðist síðast liðið vor endurtaka sig fyrr eða síðar. Framtíð sjávarútvegs á Hornafirði veltur á að innsigling um Hornafjarðarós verði tryggð.
4.
Viðhald á bryggjum - viðgerðir á þili
Málsnúmer 201311052
Viðgerð hafin á Bræðslubryggju
Vignir Júlíusson upplýsti um stöðu mála. Verktaki hefur hafið framkvæmd og eru áætluð verklok 1. mars 2016. Komið hefur í ljós eftir að framkvæmdir hófust að nokkrir staura eru á lofti og þarf að bregaðst við því. Einhver viðbótarkostnaður getur hlotist af þessu þar sem nauðsynlegt er að steypa undir þessa staura.
5.
Bílastæði við Skinney Þinganes
Málsnúmer 201602069
Málinu frestað.
6.
Sjódæling af austurfjörum
Málsnúmer 201602070
Málinu frestað.
7.
Endurnýun á lóðaleigusamningi geymusvæðis Óslandi
Málsnúmer 201602071
Endurnýun lólaleigusamnings
Lóðaleigusamningur vegna geymslulóða í Óslandi er útrunninn. Komin er fram ósk um endurnýjun. Hafnarstjórn er samþykk því að lóðarhafa verði endurúthlutað lóðum við Ófeigstaga 12 og 14 í samræmi við nýtt deiliskipulag. Málinu vísað til bæjarráðs.
8.
Gámasvæði
Málsnúmer 201602072
Vignir fór yfir stöðu mála á gámsvæði. Ástand á svæðinu er ekki nógu gott erfitt hefur reynst að fá leiguhafa til að hugsa almennilega um sitt nærsvæði. Ekki er til neitt skipulag af svæðinu og því ekki mögulegt að gera samninga sem heimila að tekið sé skipulega á málum.
Hafnarstjórn óskar eftir að skipulagsnefnd taki málið á dagskrá og skoði skipulag svæðisins í heild t.d. með það í huga að gámasvæði verði fært á aðra lóð.
9.
Tjónatilkynningar vegna veðurs 30.12.2015
Málsnúmer 201601012
Vignir upplýsti um stöðu mála í samskiptum við Viðlagatryggingar. Í óveðrinu 30. desember varð tjón á þrem stöðum innan hafnarsvæðis. Á Suðurfjörum sjóvarargarði, Álaugareyjarbryggju grjótvörn og trébryggju innst í höfninni mikill jarðvegur rann undan henni. Fulltrúar frá Viðlagatryggingum skoðuðu skemmdir en ekki hafa komið upplýsingar um mat þeirra á skemmdum. Sjóvarnargarður á Suðurfjörum telst ekki bótaskyldur hjá Viðlagatryggingum en er í skoðun hjá nefnd sem forsætisráðuneytið skipaði í vegna óveðursins.
10.
Hafnaráætlun 2015-2018
Málsnúmer 201602073
Tillaga að umsókn á endurskoðaða hafnaáætlun 2015-2018
Vignir fór yfir umsókn í endurskoðun á hafnaráætlun 2015-2018.
Hafnarstjórn samþykkt framlögðum tillögum.