Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

184. fundur
22. mars 2016 kl. 16:00 - 17:37
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Valdemar Einarsson formaður
Sigurður Einar Sigurðsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Reynir Arnarson aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir aðalmaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Björn Ingi Jónsson Hafnastjóri
Fundargerð ritaði:
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Dagskrá
1.
Viðhald á bryggjum - viðgerðir á þili
Málsnúmer 201311052
Vinna við Bræðslubryggju
Farið yfir verkið og er því lokið. Gert var við 19 staura með því að steypa utan um þá og voru 4 staurar á lofti.
2.
Rafmagn á Austurfjörum
Málsnúmer 201507030
Vignir upplýsti um framvindu í rafmagnsmálum á Austurfjöru. Meira logn er á austurfjörum en talið var. Fjarorka hefur lagt til að sett verði lítil varaaflsvél til að taka á þeim tímabilum sem logn varir um langan tíma.
3.
Skemmdir á Sjóvarnagarði á Suðurfjörum
Málsnúmer 201502058
Staðan á sjóvörn Suðurfjöru
Vignir fór yfir stöðu málsins. Í óveðri 30. desember urðu skemmdir á sjóvarnargarði á Suðurfjörum sem metnar eru á um 1. milljón króna. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni var umsókn vegna tjóns á Suðurfjörum fellt út í síðustu útgáfu tjónamatsskýrslunnar. Hafnarstjórn felur forstöðumanni að leita skýringa á þessari málsmeðferð.
4.
Eftirlit með móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum
Málsnúmer 201603060
Vignir upplýsti um vinnu við endurskoðun á áætlun um móttöku og úrgangs og farmleifar frá skipum.
5.
Innsiglingin um Hornafjarðarós
Málsnúmer 201505004
Vignir upplýsti að siglingarsvið Vegagerðarinnar hefur áhuga á að leggja hugmyndir um framkvæmdir vegna innsiglingar um Hornafjarðarós fyrir alþjóðlega sérfræðinga. Hafnarstjórn ítrekar eldri bókanir sínar um nauðsyn þess að finna varanlega lausn á dýpi í innsiglingunni um Hornafjarðarós og þar með Grynnslunum.
6.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Málsnúmer 201211036
Sorpgámur við smábátahöfn
Farið yfir umgengin við sorpgám sem settur hefur verið niður við smábátahöfnina. Umgengni um hann er ábótavant verið er að setja í hann olíubrúsa og annan úrgang sem ekki tilheyrir almennu sorpi.
Hafnarstjórn felur forstöðumanni að senda bréf til þeirra sem málið varðar með ábendingum um bætta umgengni við sorpgáminn.

Valdemar Einarson formaður hafnarstjórnar upplýsti að hann er að hætta sem fulltrúi í hafnarstjórn. Hafnarstjórn þakkar Valdemar Einarssyni fyrir samstarfið og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.