Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

190. fundur
25. október 2016 kl. 12:00 - 14:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Bryndís Hólmarsdóttir formaður
Sigurður Einar Sigurðsson varaformaður
Páll Guðmundsson aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir 2. varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Björn Ingi Jónsson Hafnastjóri
Fundargerð ritaði:
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2017
Málsnúmer 201609012
Til kynningar og umræður
Farið yfir fjárhagsáætun 2017. Samdráttur er í tekjum hafnarinnar á árinu 2016 og útlit fyrir svipaða tekjuáætlun fyrir árið 2017. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og forstöðumanni hafnarinnar að vinna áfram að fjárhagsáætlun ársins 2017.
2.
Framkvæmdir innan hafnar
Málsnúmer 201606069
umræða
Vignir fór yfir hugmyndir að verkefnum næsta árs og það sem unnið hefur verið að á árinu 2016.
3.
Ósk um yfirlýsingu hafnarstjónar v. hafnsögumanns
Málsnúmer 201604079
Til afgreiðslu
Vignir upplýsti að til að einstaklingur geti fengið skírteini hafnsögumaður þarf viðkomandi hafnarstjórn að mæla með umsækjanda.
Sigurður Ægir Birgisson hefur óskað eftir slíkri yfirlýsingu.
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar lýsir hér með yfir að hún mælir með umsókn hans til skírteinis hafnsögumanns við Hornafjarðarhöfn.
4.
Sérstakt standveiðigjald til hafna
Málsnúmer 201610046
Erindi Fiskistofu dags. 11. október 2016 lagt fram til kynningar. Erindið inniheldur upplýsingar um að tekjur hafnarinnar vegna sérstaks strandveiðigjalds til hafnarinnar nemur 1.251.472 krónur.
Vignir upplýsti um tekjur hafnarinnar vegna strandveiða sumarið 2016
5.
Löndunarkranar
Málsnúmer 201604078
Til kynningar
Erindi smábátafélagsins Hrollaugs dags.6.október 2016 lagt fram. Hafnarstórn ræddi erindið og felur starfsmanni að kanna mögulegar lausnir á framtíðarstaðsetningu krana.
6.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Málsnúmer 201211036
Forstöðumaður og nefndarmenn sem fóru á Hafnarsambandsþing 13 og 14 október 2016. Á þinginu kom fram að móttaka sorps hjá Höfnum landsins er ekki í samræmi við gildandi reglur ESB. Stjórn Hafnarsambandsins er að vinna að úrlausn málsins til að samræma ferli sorpmála hjá höfnum landsins. Einnig voru umræður á þinginu um tekjumöguleika hafna aflagjöld, skipagjöld og aflaverðmæti.