hafnarstjórn Hornafjarðar
191. fundur
29. nóvember 2016
kl.
16:45
-
18:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigurður Einar Sigurðsson
varaformaður
Páll Guðmundsson
aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir
aðalmaður
Ingólfur Ásgrímsson
áheyrnarfulltrúi
Reynir Arnarson
aðalmaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Björn Ingi Jónsson
Hafnastjóri
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Innsiglingin um Hornafjarðarós
Vignir lagði fram dýpiskort af Grynnslunum. Einnig var farið yfir minnisblað stöðu rannsókna frá Vegagerðinni um Grynnslin.
2.
Cruise Iceland 2016
Vignir upplýsti um hvað er á döfinni með kynningarmál gegnum Cruise Iceland. Hafnarstjórn telur fara eigi yfir árgjald vegna þátttöku hafnarinnar og telur óeðlilegt að litlar hafnir borgi sömu upphæð og stórar hafnir. Starfsmönnum falið að koma þessu á framfæri við hlutaðeigendur. Málið tekið fyrir að nýju þegar upplýsingar berast frá Cruise Iceland.
3.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar 2015
Vignir fór yfir gjaldskrá hafnarinnar. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að klára að útfæra gjaldskrá og leggja fyrir á næsta fundi.
4.
Fjárhagsáætlun 2017
Hafnarstjóri fór yfir fjárhagsáætlun hafnarinnar fyrir árið 2017. Hafnarstjórn samþykkja framlagða fjárhagsáætlun.
5.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Reynir Arnarson mætti á fundinn.
Vignir upplýsti að flotbryggjur sem keyptar voru af Fljótsdalshéraði eru komnar á svæðið. Unnið er að lagfæringum á þeim.
Vignir upplýsti að endanlegum frágangi á austurfjörum vegna innsiglingarljósa er lokið.
Vignir upplýsti að flotbryggjur sem keyptar voru af Fljótsdalshéraði eru komnar á svæðið. Unnið er að lagfæringum á þeim.
Vignir upplýsti að endanlegum frágangi á austurfjörum vegna innsiglingarljósa er lokið.