Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

196. fundur
27. júní 2017 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Bryndís Hólmarsdóttir formaður
Sigurður Einar Sigurðsson varaformaður
Reynir Arnarson aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir aðalmaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Samgönguáætlun 2018-2021 umsóknir Hornafjarðarhafnar
Málsnúmer 201706069
Framsetning á óskum Hornafjarðarhafnar inní samgönguáætlun
Vignir fór yfir drög að umsókn á samgönguáætlun 2018-2021. Umræður um viðhaldsþörf og forgangsröðun verkefna næstu fjögur árin. Umræður um framtíðarfyrirkomulag og búnað við viðhaldsdýpkun.
Hafnarstjórn samþykkir framlögð drög og felur starfsmanni að senda inn umsóknina.
2.
Framkvæmdir innan hafnar
Málsnúmer 201606069
Vignir gerði grein fyrir fyrirhuguðum gatnaframkvæmdum á hafnarsvæðinu og í Óslandi. Umræður um framtíðar skipulag gatnakerfis í Óslandi. Umræður um gömlu viðlegukantana og þörfina á tiltekt á því svæði.
Hafnarstjórn fagnar framkomnum tillögum að gatnaframkvæmdum.
3.
Endurmat á stofnvirði hafnarmanvirkja
Málsnúmer 201601009
Lagt fram til kynningar.
4.
Fundargerðir og erindi Hafnasamband sveitarfélaga 2017
Málsnúmer 201702072
Fundargerðir lagðar fram.
Lagt fram til kynningar.
5.
Cruise Iceland 2017
Málsnúmer 201702016
Fundargerðir stjórnar lagðar fram.
Umræður um samþykktir Cruise Iceland.