hafnarstjórn Hornafjarðar
199. fundur
24. október 2017
kl.
16:00
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Bryndís Hólmarsdóttir
formaður
Sigurður Einar Sigurðsson
varaformaður
Páll Guðmundsson
aðalmaður
Reynir Arnarson
aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
2. varamaður
Starfsmenn
Björn Ingi Jónsson
Hafnastjóri
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Hugmyndir um uppbyggingu í ferðaþjónustu á Höfn
Erindi vísað frá bæjarráði og óskað umsagnar hafnarstjórnar um verkefnið.
Hafnarstjórn telur að hér geti verið um áhugaverða hugmynd að ræða. Talsverð inngrip verða óneytanlega af svo miklum framkvæmdum á hafnarsvæðinu og því mikilvægt að málið verði skoðað betur áður en afstaða til málsins verði tekin.
Hafnarstjórn felur starfsmönnum að kynna hugmyndina fyrir notendum hafnarinnar og málið verði tekið fyrir á næsta fundi.
Hafnarstjórn felur starfsmönnum að kynna hugmyndina fyrir notendum hafnarinnar og málið verði tekið fyrir á næsta fundi.
2.
Akurey
Skýrsla um ástand skipsins.
Hafnarstjórn telur að ástand skipsins sé afar slæmt og mælir með að skipunu verði fargað ef ekki finnst fjármagn til að bjarga því.
3.
Fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2018
Til umræðu
Farið yfir ramma hafnarinnar fyrir árið 2018. Hafnarstjórn vísar ramma til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
4.
Viðhaldsdýpkun 2017
Kynnig á stöðu mála.
Hafnarstjóri upplýsti um stöðu mála.
Hafnarstjórn leggur mikla áherslu á að dýpkunarframkvæmdir hefjist sem allra fyrst.
Hafnarstjórn leggur mikla áherslu á að dýpkunarframkvæmdir hefjist sem allra fyrst.
5.
Fundargerðir/erindi Hafnasambands
Lagt fram til kynningar.