hafnarstjórn Hornafjarðar
202. fundur
28. nóvember 2017
kl.
16:00
-
17:42
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Bryndís Hólmarsdóttir
formaður
Sigurður Einar Sigurðsson
varaformaður
Páll Guðmundsson
aðalmaður
Reynir Arnarson
aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Björn Ingi Jónsson
Hafnastjóri
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Ársreikningur Hafnarsjóðs 2016
Lagður fram til kynningar.
2.
Fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2018
Hafnarstjóri fór yfir fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2018. Hafnarstjórn samþykkir framlagða fjárhagsáætlun.
3.
Framtíðarsýn Hornafjarðarhöfn
Lögð fram tímaáætlun frá Óla Samró vegna ráðgjafar um þróun Hornafjarðarhafnar. Gert er ráð fyrir að verkefnið taki í það minnsta 52 vikur. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að kanna málið frekar.
4.
Akurey
Vignir fór yfir stöðu mála. Unnið er að gerð greinagerðar í framhaldi af skoðun sérfræðinga á ástandi skipsins og þess sem fram kom á íbúafundi.
5.
Hugmyndir um uppbyggingu í ferðaþjónustu á Höfn
Vignir fór yfir hvað unnið hefur verið frá síðasta fundi. Haft var samband við forsvarsmenn Smábátafélagsins Hrollaugs og Útvegsmannafélags Hornafjarðar. Ekki hafa komið viðbrögð vegna þessa. Af tillögunni að dæma er ljóst að miklar breytingar þarf að gera á athafnasvæði hafnarinnar og framkvæmdaraðili myndi verða að kosta þær breytingar.
Hafnarstjórn frestar afgreiðslu til næsta fundar.
Hafnarstjórn frestar afgreiðslu til næsta fundar.
6.
Viðhaldsdýpkun 2017
til kynningar
Forstöðumaður Hornafjarðahafnar fór yfir stöðuna. Áætlanir gera ráð fyrir að dýpkun ljúki í lok vikunnar.
7.
Öryggismál Hornafjarðarhafnar
Formaður hóf máls á öryggismálum hafnarinnar og hæð á bryggjukanti. Hluti af bryggjum er að staðaldri notaður sem bílastæði þrátt fyrir að hafnarstjórn hefur ekki gefið samþykki sitt fyrir slíkri notkunn. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að kanna möguleika á að hækka kantinn á Vogarbryggju.
8.
Fundargerðir/erindi Hafnasambands
Lagt fram til kynningar.