Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

243. fundur
24. janúar 2022 kl. 16:00 - 17:00
Teams Meating
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Arna Ósk Harðardóttir varaformaður
Sigurður Ægir Birgisson aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Sigurður Ólafsson aðalmaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerðir Hafnasambandsins
Málsnúmer 202003067
Lagt fram til kynningar.
2.
Viðhaldsdæling 2021
Málsnúmer 202110075
Dýpkunarframkvæmdum innan hafnar lauk í byrjun desember 2021 og gengu samkvæmt áætlun.
3.
Grynnslin - næstu skref
Málsnúmer 202102083
Framkvæmdaleyfi fyrir bráðabirgðadýpkun um 30.000 m3 á Grynnslum hefur verið gefið út.
Enn er ekki komin tímasetning á framkvæmdir.
4.
Útboð á orkuskiptum dráttarbáts
Málsnúmer 202201050
Hornafjarðarhöfn tekur þátt í "undanfarandi markaðskönnun" á vegum Ríkiskaupa í samvinnu við fleiri hafnir er varðar hugsanleg kaup á nýjum lóðsbát með orkuskipti í huga.
5.
Breyting á deiliskipulagi Hornafjarðarhöfn við Ósland
Málsnúmer 202104021
Stefnt er á að halda vinnufund með skipulagsráðgjöfum 7. febrúar n.k.