Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

244. fundur
28. febrúar 2022 kl. 16:00 - 16:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Arna Ósk Harðardóttir varaformaður
Sigurður Ægir Birgisson aðalmaður
Sigurður Einar Sigurðsson 1. varamaður
Sigurður Ólafsson aðalmaður
Maríus Máni Jónsson Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202001013
Bæjarráð óskaði eftir umsögn frá fastanefndum sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.
2.
Grynnslin - næstu skref
Málsnúmer 202102083
Vegagerðin hefur hafið undirbúning fyrir dýpkun á Grynnslunum. Um er að ræða fyrirspurn um matsskyldu og botndýralífs sýnataka á losunarstaðnum.
Lagt fram til kynningar.
3.
Greining á gjaldtöku af sjávarútvegi og fiskeldi
Málsnúmer 202202101
Samtök sjávarútvegssveitarfélaga létu vinna greiningu á gjaldtöku á sjávarútvegi og fiskeldi og hvernig þær tekjur skiptast á milli ríkis og sveitarfélaga. Tilefnið er m.a. vegna aukinnar gjaldtöku af hálfu ríkisins á þessum tveimur atvinnugreinum og aukinna krafna á sveitarfélögin um aukna þjónustu og bætta innviði. Í greiningunni kemur fram að hlutdeild sveitarfélaga í heildargjaldtöku í sjávarútvegi og fiskeldi hefur verið á bilinu 26-29% á árunum 2016 - 2020 og er það fyrst og fremst útsvarsgreiðslur launþega. Önnur gjöld sem sveitarfélögin innheimta af rekstri fyrirtækja í sjávarútvegi og fiskeldi eru hafnar- og aflagjöld, auk fasteignagjalda.
Hafnarstjórn vekur athygli á því hversu lágt hlutfall tekna frá sjávarútvegi renna til sveitarfélaga þrátt fyrir aukna gjaldheimtu af hendi ríksins.
4.
Fundargerðir Hafnasambandsins
Málsnúmer 202003067
Lagt fram til kynningar.