Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

251. fundur
28. nóvember 2022 kl. 17:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson formaður
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Sigursteinn Ingvar Traustason Fulltrúi ungmennaráðs
Ögmundur Jón Guðnason varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafna
Dagskrá
1.
Hornafjarðarhöfn við Ósland - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202104021
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísaði deiliskipulagsbreytinunni ásamt umsögnum og athugasemdum til umfjöllunar hafnarstjórnar.
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi tillögu um breytingu á deiliskipulagi.
2.
Breyting á deiliskipulagi - Hafnarsvæði við Krossey
Málsnúmer 202209031
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísaði erindi frá Skinney-Þinganess hf. til Hafnarstjórnar á fundi sínum þann 14. nóvember 2022. Skinney-Þinganes hf. óskar eftir breytingu á gildandi skilmálum deiliskipulags, Hafnarsvæði við Krossey, fyrir reit á Krosseyjarvegi 2 austan við fiskvinnsluhús. Deiliskipulag gerir ráð fyrir tíu metra mænishæð, en óskað er eftir að mænishæð verði færð í 17 metra. Lögð er fram vinnslutillaga deiliskipulagsbreytingarinnar.
Hafnarstjórn fagnar uppbyggingu á hafnarsvæði og felur starfsmönnum að eiga samtal forsvarsmenn Skinneyjar-Þinganess um áframhaldið og skipulag svæðisins.
3.
Damen í Hollandi
Málsnúmer 202211072
Vignir greindi frá heimsókn starsmanna til Dammen í Hollandi.
Lagt fram til kynningar.
4.
Hafnasambandsþing 2022
Málsnúmer 202211071
Fundargögn frá þinginu og ýmsar upplýsingar má finna á meðfylgjandi tengli:https://hafnasamband.is/fundir-og-radstefnur/hafnasambandsthing-2022/
Lagt fram til kynningar.
5.
Fundargerðir Hafnasambandsins
Málsnúmer 202003067
Lagt fram til kynningar.
6.
Dýpkun á Grynnslum 2022
Málsnúmer 202203093
Álfsnes byrjaði dýpkun 22. okt og fór 4. nóvember 2022. Skipið náði að fjarlægja rösklega 52 þúsund rúmmetra af þeim 130 þúsund sem stefnt var að taka.Eftir fundarhöld með Vegagerðinni og verktaka er tillaga um að greiða fyrir það magn sem þegar hefur verið dælt upp og færa samninginn á næsta sumar óverðbættan. Rétt er að taka fram að skipið mun koma hingað aftur ef veður leyfir og við fyrsta tækifæri um leið og aðstæður leyfa og halda áfram dýpkun.
Hafnarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar bendir enn og aftur á ósanngjarna kostnaðarskiptingu á milli sveitarfélagsins og ríkisins við dýpkun á Grynnslunum. Grynnslin eru utan skilgreinds hafnarsvæðis og það er ekki um aðra leið að ræða fyrir flotann til hafnar af sjó.

Hafnarstjórn hvetur yfirvöld samgöngumála eindregið til að taka nú þegar undir sjónarmið sveitarfélagsins og standa straum af kostnaði við dýpkun á Grynnslunum.