hafnarstjórn Hornafjarðar
253. fundur
27. febrúar 2023
kl.
17:00
-
18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson
formaður
Halldór Tjörvi Einarsson
varaformaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Sigursteinn Ingvar Traustason
Fulltrúi ungmennaráðs
Helga Valgerður Friðriksdóttir
varamaður
Ögmundur Jón Guðnason
varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafna
Dagskrá
1.
Hornafjörður náttúrulega
Bæjarráð vísar heildarstefnu sveitarfélagsins sem heitir "Hornafjörður Náttúrulega" til kynningar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins. Bæjarstjóri mætti og kynnti stefnuna.
Bæjarstjóri kynnti nýja heildarstefnu sveitarfélagsins og innleiðingaráætlun ársins 2023.
2.
Viðhaldsdýpkun innan hafnar 2022 til 2026
Forstöðumaður hafnarinnar kynnti niðurstöðu útboð um viðhaldsdýpkun innan hafnar.
Tilboðin hafa verið yfirfarin og leiðrétt eftir því sem við á. Hafnarstjórn samþykkir að Vegagerðin gangi til samninga við lægstbjóðanda, Dýpkunarfélagið Trölla ehf.
3.
Fundargerðir Hafnasambandsins
Lagt fram til kynningar.