hafnarstjórn Hornafjarðar
259. fundur
25. september 2023
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson
formaður
Halldór Tjörvi Einarsson
varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir
aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Sigursteinn Ingvar Traustason
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson
hafnarstjóri / bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafna 2024
Farið yfir rekstur hafnarsjóðs það sem af er ári.
Miðað við núverandi stöðu eru líkur á að áætlun ársins standist.
2.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar
Farið yfir núverandi gjaldskrá.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar hefur ekki hækkað sl. þrjú ár og kominn er tími til að endurskoða hana. Felur Hafnarstjórn, hafnarstjóra og forstöðumanni, að vinna minnisblað með samanburði á gjaldskrám annarra sambærilegra hafna og leggja fyrir á næsta fundi.
3.
Dýpkun á Grynnslum 2022
Minnisblað um vetrardýpkun á Grynnslunum frá Vegagerðinni lagt fyrir.
Hafnarstjórn lýsir vonbrigðum með að dýpkunarskipið Sóley verði ekki hjá okkur við dýpkun í Hornafjarðarós, fyrr en í janúar. Bæði er tíðin þá orðin mikil áskorun og er dýpkunargeta Sóleyjar einnig mikið áhyggjuefni.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og forstöðumanni að kanna til hlýtar hvort hægt verði að fá öflugra skip til verksins og kanna einnig hvort ekki verði hægt að byrja fyrr en í janúar, líkt og ráð var fyrir gert. Það gefur auga leið að viðhaldsdýpkun á skurði á Grynnslunum er einfaldara verk en að hefja stofndýpkun á erfiðasta tíma veðurfarslega, í janúar.
Bæjarráð hefur samþykkt að Hornafjarðarhöfn verði verkkaupi þó að Vegagerðin beri allan kostnað af verkinu og staðfestir hafnarstjórn þá ályktun. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu í samstarfi við Vegagerðina.

4.
Samningur um hafnaraðstöðu á Austurfjöru
Formaður hafnarstjórnar Skúli Ingólfsson vék af fundi undir þessum lið. Bæjarstjóri greindi frá stöðu samningaviðræðna við Litlahorn ehf um hafnaraðstöðu á Austurfjörutanga.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
5.
Endurnýjun Jafnréttisáætlunnar
Nýlega var hafist handa við að uppfæra jafnréttisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar og leitar velferðarnefnd nú eftir umsögn og athugasemdum frá öðrum fastanefndum.
Lagt fram til kynningar.