Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

260. fundur
23. október 2023 kl. 16:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson formaður
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður
Helga Valgerður Friðriksdóttir varamaður
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Sigursteinn Ingvar Traustason Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Fundargerð ritaði:
Vignir Júlíusson Forstöðumaður
Dagskrá
1.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar
Málsnúmer 202309076
Farið yfir tillögur að breytingu á gjaldská hafnarinnar.
Niðurstaða var að fela starfsmönnum að frekari vinnslu fyrir næsta fund.
2.
Dýpkun á Grynnslum 2022
Málsnúmer 202203093
Sigurður Sigurðarson frá Vegagerðinni kynnir verkefni sem DHI er að vinna að.
Prófaðar verða nokkrar útgáfur að varnarmannvirkjum á Grynnslunum í tölvulíkönum hjá stofnuninni.
Fundurinn einróma um að halda þessu verkefni áfram og klára það.
3.
Viðhaldsdýpkun innan hafnar 2022 2026
Málsnúmer 202301048
Greint fá framgangi dýpkunar, gengur samkvæmt áætlun og verklok áætluð í vikulokin.
Spurt var um hvort leyfi til dýpkunar væru til staðar, upplýst um að svo væri.
4.
Umhverfi hafnarinnar
Málsnúmer 202310105
Fram kom að grjót til sjóvarna vantar við austur og suðurbakka við verkstæðishús Bræðslunnar.
Haft hefur verið samband við Vegagerðina og vinna er í gangi.
5.
Fundargerðir Hafnasambandsins
Málsnúmer 202003067
Fundargerðir til kynningar