Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

261. fundur
27. nóvember 2023 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson formaður
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson hafnarstjóri / bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerðir Hafnasambandsins
2.
Dýpkun á Grynnslum 2022-2023
Málsnúmer 202203093
Fyrir liggur samningur á milli Hafnarsjóðs Hornafjarðar, sem er verkkaupi, og Björgun ehf. sem er verktaki. Verktaki tekur að sér að dýpka á Grynnslunum frá og með 2. janúar 2024 til 15. mars 2024 og skal vera með dýpkunarskipið Sóley til taks á Höfn í Hornafirði allan samningstímann.
Hafnarstjóra og forstöðumanni falið að fara yfir málið með Vegagerðinni í vikunni og undirrita samning við verktaka í kjölfarið.
3.
Fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafna 2024
Málsnúmer 202309074
Forstöðumaður og Hafnarstjóri fóru yfir fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar ásamt áætlaðri fjárfestingaráætlun 2024.
Fjárhags- og framkvæmdaáætlun samþykkt.
4.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar
Málsnúmer 202309076
Fyrir fundinum lágu tillögur að nýrri gjaldskrá Hornafjarðarhafnar.
Gjaldskrá samþykkt með 4 atkvæðum.
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir sat hjá.
5.
Austurfjörutangi - Ólögmæt háttsemi Hornafjarðarhafnar
Málsnúmer 202207007
Fyrir lá erindi frá Samkeppniseftirlitinu. Þar fer Litlahorn fram á að Samkeppniseftirlitið skoði hvort háttsemi Vegagerðarinnar og Hornafjarðarhafnar um að synja Litlahorni um viðhaldsdýpkun fyrir framan bryggju á Austurfjörutanga stríði gegn markmiðum samkeppnislaga nr. 44/2005.
Skúli Ingólfsson vék af fundi undir þessum lið, og nýtti tímann í að vökva blóminn í ráðhúsinu.
----
Starfsmönnum falið að svara bréfinu.
6.
Styrkur til orkuskipta
Málsnúmer 202311160
Fyrir fundinum liggur samningur sem Orkusjóður og Sveitarfélagið Hornafjörður gera með sér. Orkusjóður styrkir sveitarfélagið um 1.217.000 kr. til að efla vind- og sólarsellu tækin á Austurfjörutanga en þau safna afli sem knýr innsiglingarljósin í Hornafjarðarós og innsiglingunni um hann.
Hafnarstjórn lýsir ánægju með samninginn og að aðstaðan á Austurfjöru verði bætt.