Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

262. fundur
22. janúar 2024 kl. 16:00 - 17:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Sigursteinn Ingvar Traustason Fulltrúi ungmennaráðs
Björgvin Hlíðar Erlendsson varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson hafnarstjóri / bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Dýpkun á Grynnslum 2022-2023
Málsnúmer 202203093
Verksamningur.
Dýpkunarskipið Sóley leggur af stað til Hornafjarðar þann 29. janúar nk. og verður komið til okkar 1. febrúar.
----
Lagt fram til kynningar.
2.
Fundargerðir Hafnasambandsins
Málsnúmer 202003067
Lagt fram til kynningar.
3.
DHI AS Rannsóknarvinna
Málsnúmer 202401106
Farið yfir nýjustu niðurstöður á rannsóknum DHI á Grynnslunum.
Fyrstu niðurstöður rannsókna varðandi uppbyggingu varnargarða á Grynnslunum lofa góðu. Næstu skref eru þau að DHI skoðar áfram fjórar útfærslur varnargarða og meta áhrif þeirra á innsiglinguna um Hornafjörð. Næstu niðustöður verða kynntar á fundi með DHI og Vegagerðinni 2. febrúar nk.
4.
Miklagarðsbryggja endurbætur
Málsnúmer 202401121
Hafnarstjórn þarf að taka afstöðu til efnispöntunnar Miklagarðsbryggju í haust. Ef efnið er pantað í haust kemur það hingað í byrjun árs 2025 og þannig gæti þilið verið rekið niður sumarið 2025 og ný þekja sett á bryggjuna árið 2026.Heildarkostnaður við verkefni er að öllum líkindum um 300 m.kr. en verkefnið er styrkhæft upp á 75% úr hafnabótasjóð.
Hafnarstjórn felur starfsmönnum að vinna minnisblað um verkefnið og skoða sérstaklega Miklagarðsbryggju m.t.t. ástands annarra bryggja, forgangsröðun framkvæmda og mikilvægi og leggja fyrir næsta fund hafnarstjórnar.
5.
Styrkur til orkuskipta
Málsnúmer 202311160
Lögð fram drög að samningi við Orkusjóð um styrk til orkuskipta vegna uppfærslu á raforku til innsiglingarljósa á Austurfjörum.
Uppfæra þarf búnaðinn til að draga úr mengun, auka skilvirkni og tryggja betur öryggi. Lagt er til að fjárfesta í vind-rafstöð samskonar og þeirri sem er fyrir og tvöfalda fjölda rafgeyma. Þá verður ýmis búnaður endurnýjaður. Kostnaður er metinn 2 m.kr. og styrkir Orkusjóður verkefnið um 33%. Hafnarstjórn samþykkir að fara í verkið.