hafnarstjórn Hornafjarðar
263. fundur
28. febrúar 2024
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Halldór Tjörvi Einarsson
varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Sigursteinn Ingvar Traustason
Fulltrúi ungmennaráðs
Karl Heimir Einarsson
varamaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson
varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson
hafnarstjóri / bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Á fundinum fórum við yfir núverandi aðalskipulag hafnarsvæðisins og hvaða áherslur og breytingar þarf að gera á hafnarsvæðinu í vinnu á nýju aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Starfsmönnum falið að vinna áfram við nýtt aðalskipulag hafnarsvæðis með hliðsjón af umræðum á fundinum. Einnig mun hafnarstjórn á milli funda rýna gögn og eru fundarmenn hvattir til að hugsa langt fram í tímann og sjá fyrir sér mögulega þróun og framtíð í hafnaraðstöðu og þróun hafnarmannvirkja í Hornafirði á næstu árum og áratugum.
Á næsta fundi hafnarstjórnar verður farið betur yfir hafnarsvæðið í nýju aðalskipulagi og áherslur hafnarstjórnar í skipulaginu.
Á næsta fundi hafnarstjórnar verður farið betur yfir hafnarsvæðið í nýju aðalskipulagi og áherslur hafnarstjórnar í skipulaginu.
2.
Fundargerðir og erindi Hafnasamband sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
3.
Mannréttindastefna
Bæjarráð óskaði eftir umsögn hafnarstjórnar við Mannréttindastefnu sem hefur verið í vinnslu hjá stýrihóp um mannréttindastefnu sveitarfélagsins.
Hafnarstjórn lýsir ánægju með nýja mannréttindastefnu.
4.
Menningarstefna 2023
Bæjarráð vísðaði menningarstefnu til umsagnar í nefndum sveitarfélagsins.
Hafnarstjórn gerir enga athugasemd við stefnuna og þakkar góða kynningu.
5.
Málstefna
Bæjarráð vísaði nýrri málstefnu til umsagnar í nefndum sveitarfélagsins og er hún hér lögð fram til hafnarstjórnar.
Engar ábendingar eða athugasemdir eru frá hafnarstjórn við nýja málstefnu.