hafnarstjórn Hornafjarðar
278. fundur
22. september 2025
kl.
16:00
-
16:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Halldór Tjörvi Einarsson
varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir
aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Helga Valgerður Friðriksdóttir
varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson
hafnarstjóri / bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Dýpkun á Grynnslum 2025
Kjartani Elíasson frá Vegagerðinni kom inn á fundinn og fór yfir stöðu dýpkunar á Grynnslum.
Kjartan upplýsti um að nú er umsókn um "Leyfi til varps í hafi", í mati á umhverfisáhrifum og ætti þeirri vinnu að ljúka á fyrri hluta næsta árs. Sótt er 10 milljón rúmmetra, en um 50 þúsund rúmmetrar eru eftir af núverandi heimild. Vegagerðin stefnir að því að gera samning um dýpkun upp á þessa 50 þúsund rúmetra nú í haust og færi sú dýpkun fram á vetrarvertíðinni.
Hafnarstjórn þakkar góða yfirferð og leggur áherslu á að þeir samningar sem gerðir verða um dýpkun í framhaldi af nýrri heimild til losunar verði til lengri tíma og auki þannig fyrirsjáanleika.
Hafnarstjórn þakkar góða yfirferð og leggur áherslu á að þeir samningar sem gerðir verða um dýpkun í framhaldi af nýrri heimild til losunar verði til lengri tíma og auki þannig fyrirsjáanleika.
2.
Fundargerðir og erindi Hafnasamband sveitarfélaga 2024-25
Lagt fram til kynningar.
3.
Hafnafundur 2025
Stjórn Hafnasambands Íslands boðar til 12. hafnafundar, sem haldinn verður í Félagsheimilinu Klifi Ólafsvík, fimmtudaginn 23. október nk.
Lagt fram til kynningar.
4.
Fjárfestingar Hafna á Íslandi 2025-2040
FJÁRFESTINGAR HAFNA Á ÍSLANDI 2025 - 2040Stefnumótandi greining og fjárfestingarmat. Skýrsla Íslenska sjávarklasans fyrir Hafnasamband Íslands lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
5.
Fulltrúi Ungmennaráðs
Nýr fulltrúi ungmennaráðs hefur nú tekið sæti í Hafnarstjórn - fulltrúarnir eru: Aðalfulltrúi: Kristján Reynir Ívarsson og til vara er Sindri Sigurjóns Einarsson.
Hafnarstjórn býður nýja fulltrúa ungmennaráðs velkomna í hópinn.