Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
1. fundur
27. janúar 2015
kl.
16:30
-
17:30
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
formaður
Kristín Hermannsdóttir
varaformaður
Snorri Snorrason
aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson
aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir
aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
starfsmaður HSSA
Björg Sigurjónsdóttir
starfsmaður HSSA
Matthildur Ásmundardóttir
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
Dagskrá
1.
Erindisbréf heilbrigðis- og öldrunarnefndar 2015
Afgreiðslu erindisbréfs frestað til næsta fundar.
2.
Rekstrarstaða HSSA 2014
Farið var yfir stöðu 31.desember 2014. Enn eru óinnheimtar launabætur vegna kjarasamninga gerða á árinu 2014. Launabæturnar munu berast á næstu vikum. Þá mun fjárhagsáætlunin ársins 2014 standast.
3.
Fjárhagsáætlun HSSA 2015
Nefndin samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2015 til bæjarráðs.
4.
Sameining Heilbrigðisstofnana
Farið var yfir fundargerð frá fundi 16. desember með forstjóra HSU. Heilbrigðisstofnunin er nú þátttakandi í tveimur verkefnahópum sem skipaðir voru vegna sameiningar HSU, HSVE og HSSA, innkaupahóp og verkefnahóp um upplýsingatækni og símkerfi. Það eru klár sóknarfæri varðandi innkaupamál og ýmislegt varðandi upplýsingatækni. Þessir tveir verkefnahópar skila af sér skýrslu nú fljótlega. Framkvæmdastjóri fór í skoðunarferð á Selfoss þar sem hún hitti stjórnendur og skoðaði stofnunina.
5.
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Hornafirði
Sunnudaginn 18. janúar var haldinn stofnfundur Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunarinnar á Hornafirði að frumkvæði Elísabetar Einarsdóttur. Um 50 manns mættu á stofnfundinn og var kosin stjórn Hollvinasamtakanna. Stjórnina skipa Ari Jónsson, Albert Eymundsson, Halldóra Bergljót Jónsdóttir, Haukur Helgi Þorvaldsson og Elín Freyja Hauksdóttir. Varamenn í stjórn eru Elísabet Einarsdóttir og Ester Þorvaldsdóttir. Haldinn verður framhalds stofnfundur þar sem fara yfir drög að lögum Hollvinasamtakanna og ákveða árgjald. Nefndin fagnar þessu framtaki Elísabetar og óskar Hollvinasamtökunum velfarnaðar.