Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

11. fundur
22. desember 2015 kl. 16:00 - 17:15
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir formaður
Kristín Hermannsdóttir varaformaður
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Björk Pálsdóttir 2. varamaður
Sæmundur Jón Jónsson 2. varamaður
Pálína Sighvatsdóttir fulltrúi starfsmanna
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035
Fundargerð lögð fram til kynningar.
2.
Rekstarstaða HSU Hornafirði 2015
Málsnúmer 201503043
Staðan er alvarleg, en hafa ekki borist launabætur vegna áranna 2014 og 2015 fyrir heilsugæslu og sjúkrasvið. Það hafa átt sér stað samskipti við ráðuneyti og stjórnendur HSU. Framkvæmdastjóri talaði við Herdísi forstjóra HSU í dag þar sem hún lýsti vilja til þess að greiða hlutdeild Hornafjarðar í launabótum HSU í það minnsta það sem HSU hefur nú þegar fengið greitt. Áformað er að funda í Reykjavík með forstjóra og fjármálastjóra HSU ásamt framkvæmdastjóra og bæjarstjóra á Hornafirði.
3.
Gjaldskrá fyrir mötuneyti og dagvist HSSA
Málsnúmer 201301071
Lögð fram tillaga að gjaldskrárhækkun á útseldum mat í mötuneyti. Lögð er til 7% hækkun á núverandi gjaldskrá. Gjaldskráhækkun samþykkt með þeim fyrirvara að verð fyrir skólamat hækki að sama skapi.
4.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2016
Málsnúmer 201512055
Fyrstu drög fjárhagsáætlunar gera ráð fyrir talsverðum hallarekstri. Stærsti kostnaðarliðurinn er aukinn launakostnaður vegna kjarasamningshækkana. Velferðarráðuneytið hefur ekki gefið út nýja daggjaldareglugerð og því má gera ráð fyrir hækkun daggjalda miðað við þessi drög. Stjórnendum falið að rýna alla liði fjárhagsáætlunarinnar fyrir næsta fund.
5.
Fundartími í Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
Málsnúmer 201512056
Það hefur komið ósk frá fulltrúum Framsóknarflokksins um að flytja fundartíma nefndarinnar þar sem einn varamaður þeirra getur aldrei komið á settum fundartíma. Lagt til að funda 4. miðvikudag í mánuði.