Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

2. fundur
24. febrúar 2015 kl. 16:30 - 17:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir formaður
Kristín Hermannsdóttir varaformaður
Snorri Snorrason aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Pálína Sighvatsdóttir starfsmaður HSSA
Björg Sigurjónsdóttir starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Elín Freyja Hauksdóttir starfsmaður HSSA
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 1
Málsnúmer 1501011F
Samþykkt
2.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035
Fundargerðir velferðarteymis lagðar fram til kynningar.
3.
Aðgerðahópur í lýðheilsu- og forvarnarmálum
Málsnúmer 201403048
Fundargerð forvarnarhópsins lögð fram til kynningar.
4.
Erindisbréf heilbrigðis- og öldrunarnefndar 2015
Málsnúmer 201412054
Nefndin fór yfir erindisbréfið og gerði athugasemdir við orðalag. Erindisbréfi vísað áfram til bæjarráðs.
5.
Umsóknir í framkvæmdasjóð aldraðra 2015
Málsnúmer 201501072
Sótt var um framlag til Framkvæmdasjóðs aldraðra vegna kaupa á nýju sjúkrakallkerfi á hjúkrunardeild og einnig vegna fyrirhugaðrar stækkunar á sólskála við vesturenda hjúkrunardeildar. Umsóknafrestur rann út 9.febrúar, ekki er vitað hvenær úthlutað verður úr sjóðnum.
6.
Sameining Heilbrigðisstofnana
Málsnúmer 201410056
Framkvæmdastjóri fór yfir það sem hefur gerst í sameiningar. Stofnunin hefur verið þátttakandi í málefnum er varðar innkaup, upplýsingatækni. Þessir hópar eru að skila inn niðurstöðum til framkvæmdastjórnar HSU til umfjöllunar. Nú er að fara af stað verkefnahópur sem skoðar rannsóknir, fjarlækningar og læknaritun og hafa óskað eftir þátttöku HSU á Hornafirði. Stjórnendum á HSU Hornafirði hefur verið boðið að taka þátt í stjórnendadegi HSU 6. mars á Selfossi og hefur það boð verið þegið.
7.
Kosning stjórnar Gjafa- og minningasjóðs Skjólgarðs
Málsnúmer 201406068
Lagt til að ný stjórn Gjafa- og minningasjóðs Skjólgarðs sé skipuð einum fulltrúa hvers framboðs: Halldóra B. Jónsdóttir fyrir D lista, Fjóla Hrafnkelsdóttir fyrir E lista og Sigurlaug Gissurardóttir fyrir B lista. Samþykkt.
8.
Námsferð til Álaborgar
Málsnúmer 201502095
Framkvæmdastjóri hefur sótt um að fara í námsferð til Álaborgar fyrir hönd stofnunarinnar og sveitarfélagsins að skoða öldrunarheimili og lausnir í velferðartækni. Nefndin telur mikilvægt að senda fulltrúa til að kynnast öllum nýjungum í öldrunarþjónustu. Ferðin hittir á fundardag nefndarinnar þá er lagt til að nefndin fundi viku fyrr eða þriðjudaginn 17. mars, það er samþykkt.