Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

23. fundur
25. janúar 2017 kl. 16:30 - 18:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir formaður
Kristín Hermannsdóttir varaformaður
Snorri Snorrason aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Ásgerður Kristín Gylfadóttir starfsmaður HSSA
Pálína Sighvatsdóttir fulltrúi starfsmanna
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035
Fundargerð lögð fram til kynningar.
2.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2016
Málsnúmer 201603036
Allt útlit er fyrir hallalausan rekstur á árinu 2016.
3.
Handbók fyrir nýja íbúa
Málsnúmer 201701064
Ásgerður kynnti vinnu sem er í gangi á vegum Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu við vinnu að handbók fyrir nýja íbúa hjúkrunarheimila. Stofnaður var vinnuhópur á vegum samtakanna sem mun skila af sér í febrúar.
4.
Ekran - geymslur kjallara - rafskutlur
Málsnúmer 201701060
Lagt fyrir erindi frá Húsfélaginu í Ekru þar sem óskað er eftir varanlegri geymslu og hleðslustöð fyrir rafskutlur fyrir íbúa Ekrunnar. Óskað er m.a. eftir geymslu sem HSU Hornafirði er með til umráða í kjallara Ekrunnar. Geymslan er í fullri notkun sem stendur. Nefndin hvetur bæjarráð til að finna lausn á málinu. Einnig er bent á að það vantar geymslu fyrir rafskutlur fyrir íbúa í Mjallhvít.
5.
Bekkir á gönguleið fyrir eldri borgara
Málsnúmer 201612030
Kynnt verkefnið "Brúka bekki" sem gengur út á að merkja gönguleiðir og staðsetja bekki með reglulegu millibili með þarfir aldraðra í huga. Verkefnið er komið í farveg í góðu samstarfi við Félag eldri Hornfirðinga.
6.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201201073
Kynntar nýjar teikningar að hjúkrunarheimili ásamt greinargerð frá stofnuninni um þörf á nýrri byggingu. Teikningarnar eru frumdrög en lagt til að þær séu notaðar til að reikna framkvæmdakostnað svo hægt sé að sækja um í Framkvæmdasjóð aldraðra. Óskað eftir því að fá bréf frá Félagi eldri Hornfirðinga inn í greinargerðina ásamt bréfi frá bæjarstjóra. Með umsókninni mun fylgja undirritað bréf frá árinu 2002 þar sem byggingu á áfanga tvö við hjúkrunarheimilið var frestað vegna bágrar stöðu ríkisjóðs á þeim tíma.
7.
Starfsáætlun HSU Hornafirði 2016
Málsnúmer 201601068
Starfsáætlun fyrir árið 2017 lögð fram til kynningar.