Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
24. fundur
22. febrúar 2017
kl.
16:30
-
17:15
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
formaður
Kristín Hermannsdóttir
varaformaður
Snorri Snorrason
aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson
aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir
aðalmaður
Pálína Sighvatsdóttir
fulltrúi starfsmanna
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
starfsmaður HSSA
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Velferðarteymi fundargerðir
Fundargerðir lagðar fram til kynningar.
2.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2016
Rekstrarstaða ársins 2016 verður jákvæð.
3.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2017
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2017 lögð fram. Það er beðið eftir niðurstöðu um lífeyrisskuldbindingar í kjölfar gerð nýs þjónustusamnings um öldrunarþjónustu. Fjárhagsáætlun mun taka breytingum samkvæmt þeirri niðurstöðu. Fjárhagsáætlun er samþykkt með 5,9 milljón króna halla eins og hún liggur fyrir nú.
4.
Umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra 2017 - Bygging hjúkrunarheimilis
Samþykkt er að senda inn umsókn þegar kostnaðarupplýsingar liggja fyrir. Ekki er búið að skipa stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra ennþá eða auglýsa umsóknafrest. Umsóknin mun verða send inn um leið og hún er tilbúin. Jafnframt óskað eftir því að stjórn Framkvæmdasjóðs verði boðið til Hornafjarðar ásamt heilbrigðisráðherra.
5.
Ný heimasíða HSU Hornafirði
Ný heimasíða er tilbúin, það á eftir að vinna tæknileg vandamál til að hægt sé að virkja síðuna. Hún verður opnuð á allra næstu dögum.
6.
Starfsmannamál HSU Hornafirði
Auglýst hefur verið eftir starfsfólki fyrir sumarið í öll störf á stofnuninni. Það hafa skilað sér nokkrar umsóknir. Einnig var auglýst eftir stöðu Framkvæmdastjóra lækninga / yfirlækni en við gerð nýs þjónustusamnings um rekstur heilsugæslu og sjúkrasviðs var gerð krafa um þá stöðu. Ein umsókn hefur borist um stöðuna. Þetta er ný staða hjá stofnuninni en ekki hefur verið yfirlæknir í nokkur ár.