Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
26. fundur
3. maí 2017
kl.
16:30
-
18:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
formaður
Kristín Hermannsdóttir
varaformaður
Snorri Snorrason
aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir
aðalmaður
Sandra Sigmundsdóttir
1. varamaður
Pálína Sighvatsdóttir
fulltrúi starfsmanna
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2017
Reksturinn er í jafnvægi.
2.
Stefna HSU Hornafirði 2017
Unnið við greiningarvinnu fyrir stefnumótun.
3.
Fundur með heilbrigðisráðherra
Matthildur, Björn Ingi og Ásgerður fóru á fund heilbrigðisráðherra fyrir viku síðan. Markmið fundarins var að kynna stofnunina og þrýsta á byggingu nýs hjúkrunarheimilis. Ráðherra og starfsmönnum ráðuneytisins var afhent umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra sem þó er ekki fullgild þar sem enn hefur ekki verið auglýst eftir umsóknum. Fundurinn var góður og lögð var áhersla á að starfsmenn Framkvæmdasjóðs aldraðra og heilbrigðisráðherra komi í heimsókn til Hornafjarðar fyrr en síðar. Næstu skref eru að vinna umsóknina betur þannig að kostnaðarþættir verði bútaðir niður eftir fjármögnun í samræmi við reglur Framkvæmdasjóðs aldraðra.