Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

31. fundur
25. október 2017 kl. 16:30 - 17:15
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir formaður
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Ottó Marvin Gunnarsson 1. varamaður
Sandra Sigmundsdóttir 1. varamaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2017
Málsnúmer 201709332
Reksturinn er í góðu jafnvægi.
2.
Stefna HSU Hornafirði 2017
Málsnúmer 201709308
Lesið yfir fyrstu drög að stefnumótun, tekin ákvörðun um gildi og stefnumarkandi verkefni. Næsta skref er að klára vinnslu við texta og senda út til yfirlestrar til hagsmunahópa og leggja fyrir nefndir sveitarfélagsins.
3.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201709466
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd fagnar nýrri frétt á vef Velferðarráðuneytis þar sem kemur fram að áætlað er að byggja við hjúkrunarheimilið með það að markmiði að færa aðbúnað í nútímalegra horf. Áætlunin er til ársins 2022 en ekki er um fjölgun rýma að ræða miðað við þessa áætlun. Framkvæmdastjóra og bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir og að skrifað verði undir samning sem fyrst svo hægt sé að hefja undirbúning og hönnun heimilisins.
4.
Samningur um Öryggisgæslu í Mjallhvít
Málsnúmer 201710039
Ottó Marvin Gunnarsson vék af fundi undir þessum lið.
Nýr samningur um Öryggisgæslu í Mjallhvít kynntur og samþykktur.
5.
Norrænt samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi.
Málsnúmer 201709224
Nefndir sveitarfélagsins boðaðar til fundar í næstu viku vegna norræns samstarfsverkefnis um sjálfbæra bæi. Óskað eftir að allar fastanefndir komi á vinnufund.