Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

4. fundur
28. apríl 2015 kl. 16:30 - 18:05
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir formaður
Kristín Hermannsdóttir varaformaður
Snorri Snorrason aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Pálína Sighvatsdóttir fulltrúi starfsmanna
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundsdóttir Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 3
Málsnúmer 1503003F
2.
Rekstarstaða HSU Hornafirði 2015
Málsnúmer 201503043
Reksturinn er í jafnvægi.
3.
Málþing um öldrun og heilbrigði
Málsnúmer 201503044
Tekist hefur að setja saman metnaðarfulla dagskrá með spennandi fyrirlesurum. Eitthvað hefur komið inn af skráningum nú þegar og nokkrir þingmenn hafa boðað komu sína ásamt heilbrigðisráðherra. Bæjarstjórnarmenn og íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að mæta en hægt er að skrá sig á netfangið hssa@hssa.is.
4.
Námsferð til Álaborgar
Málsnúmer 201502095
Matthildur fór yfir það helsta úr heimsókn hennar til Danmerkur á öldrunarheimili og velferðartækni- og hjálpartækjamiðstöð í Álaborg. Það sem stóð uppúr hversu vel þeir eru að nýta sér ýmsa tæknimöguleika og náð með því móti að draga úr veikindum og auka ánægju starfsfólks og sömuleiðis íbúa. Einnig er aðbúnaður alls staðar til fyrirmyndar.
5.
Skjólgarður
Málsnúmer 201503091
Fram hefur komið áhugi á að endurvekja nafnið "Skjólgarður" á hjúkrunarheimili HSU Hornafirði. Þetta kom meðal annars fram á afmæli Skjólgarðs síðastliðið haust. Fundarmenn eru jákvæðir fyrir því að taka upp nafnið á ný og hvetja til meiri umræðu í samfélaginu, á meðal íbúa og starfsfólks HSU Hornafirði. Framkvæmdastjóra falið að senda erindi til þeirra sem málið varðar.
6.
Samningur um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu 2013-2016
Málsnúmer 201302012
Bæjarstjóri sendi bréf til Sjúkratrygginga Íslands (SÍ), Velferðarráðuneytisins og til stjórnenda HSU þar sem óskað var eftir því að úttekt verði framkvæmd á samningi um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði líkt og ákvæði samningsins kveða á um. Sveitarfélaginu hefur borist svar frá SÍ þar sem kemur fram að úttekt muni hefjast fljótlega og SÍ mun halda utan um framkvæmdina.
7.
Starfsmannamál
Málsnúmer 201111060
Búið er að ráða nýjan hjúkrunarstjóra á hjúkrunar- og dvalardeild HSU Hornafirði. Ásgerður Gylfadóttir, hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin og mun hefja störf í lok maí.

Mönnun í sumarafleysingar ganga erfiðlega. Ekki hefur tekist að fullmanna afleysingar. Það er ljóst að leita þarf nýrra leiða til að laða að starfsfólk í heilbrigðisþjónustu á Hornafirði.
8.
Umsóknir í framkvæmdasjóð aldraðra 2015
Málsnúmer 201501072
Ekki hafa borist svör frá Framkvæmdasjóði varðandi umsóknir sem sendar voru í sjóðinn í febrúar.