Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
5. fundur
26. maí 2015
kl.
16:30
-
17:50
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
formaður
Ásgrímur Ingólfsson
aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir
aðalmaður
Ottó Marvin Gunnarsson
1. varamaður
Björk Pálsdóttir
2. varamaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
starfsmaður HSSA
Björg Sigurjónsdóttir
starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundsdóttior
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 4
Samþykkt
2.
Velferðarteymi fundargerðir
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd tekur undir með velferðarteymi að bæjarstjórn gerist aðili að verkefninu um heilsueflandi samfélag og skipi stýrihóp um verkefnið.
3.
Rekstarstaða HSU Hornafirði 2015
Reksturinn er í jafnvægi.
4.
Samningur um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu 2013-2016
Borist hafa svör frá SÍ þar sem búið er að tilnefna tengilið vegna úttektar. Nú þegar hefur verið óskað eftir gögnum frá HSU Hornafirði varðandi samninginn. Framkvæmdastjóra falið að fylgja málinu eftir.
5.
Starfsmannamál
Ásgerður Gylfadóttir hefur hafið störf sem hjúkrunarstjóri á hjúkrunardeild og mun hún taka formlega við 1. júní. Erfiðlega hefur gengið að manna sumarafleysingar á stofnuninni, eitthvað hefur ræst úr á síðustu dögum en það er ljóst að ástandið verður erfitt í sumar.
6.
Málþing um öldrun og heilbrigði
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd lýsir ánægju með velheppnað málþing. Málþingið var vel sótt og má þar nefna Kristján Júlíusson heilbrigðisráðherra og 3 aðra þingmenn ásamt framkvæmdastjórn HSU. Mörg frambærileg erindi voru þar flutt og mikil áhersla lögð á að virkja eldra fólk með því markmiði að það geti búið sem lengst heima. Í lok málþingsins spunnust miklar umræður um viðbyggingu við hjúkrunardeild og um þjónustusamning um rekstur heilbrigðisþjónustu. "Heilbrigðis- og öldurnarnefnd hvetur háttvirtan heilbrigðisráðherra til þess hefja undirbúning að viðbyggingu við hjúkrunarheimilið á Hornafirði hið fyrsta. Aðstaðan er langt undir þeim viðmiðum sem velferðarráðuneytið setur ásamt því að á Hornafirði er rúmlega helmingur allra tvíbýla á Suðurlandi. Einnig leggur nefndin áherslu á að þjónustusamningur um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði verði endurnýjaður áður en núverandi samningur rennur úr gildi."
7.
Skjólgarður
Framkvæmdastjóra, falið að fylgja málinu eftir og stefnt að því að taka akvörðun næsta haust.
8.
Starfsmannaferð til Akureyrar
Matthildur kynnti ferð sem starfsfólk HSU Hornafirði og heimaþjónustudeildar fór í til Akureyrar í byrjun maí. Ferðin var afar lærdómsrík og gaf starfsfólki góðar hugmyndir bæði er varðar starfið sem og þegar undirbúningur að viðbyggingu hefst við hjúkrunardeild.