Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
6. fundur
23. júní 2015
kl.
16:30
-
18:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
formaður
Kristín Hermannsdóttir
varaformaður
Snorri Snorrason
aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir
aðalmaður
Sæmundur Jón Jónsson
2. varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundsdóttior
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Dagskrá
1.
Ársreikningur HSSA
Sigurjón Örn Arnarson fór yfir ársreikning HSU Hornafirði. Afkoma af reksri stofnunarinnar á árinu 2014 var jákvæð um 2.527 þús. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd og framkvæmdastjóri staðfestu ársreikning 2014 með undirritun.
2.
Ársreikningur_2014
Farið yfir reikning Gjafa- og minningasjóðs fyrir árið 2014. Reikningurinn er samþykktur.
3.
Rekstarstaða HSU Hornafirði 2015
Reksturinn í jafnvægi.
4.
Ársskýrsla HSSA
Farið yfir fyrstu tölur úr ársskýrslu HSU Hornafirði fyrir árið 2014 og einnig samanburður á starfsemistölum frá öðrum starfsstöðvum HSU. Ársskýrslan mun verða tilbúin á ágúst fundi nefndarinnar.
5.
Umsóknir í framkvæmdasjóð aldraðra 2015
Sótt var um fjármagn í Framkvæmdasjóð aldraðra til viðbyggingar á sólstofu hjúkrunardeildar og um þátttöku í kaupum á nýju sjúkrakallkerfi á hjúkrunardeildina. Með viðbyggingu á sólstofu verður hægt að fjölga einbýlum um tvö. Framkvæmdastjóðurinn samþykkti umsóknirnar. Heilbrigðis- og öldrunarnefndin fagnar styrkveitingum úr Framkvæmdasjóðnum.
6.
Heilsueflandi samfélag
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd fór yfir kynningarglærur um heilsueflandi samfélag. Nefndin telur að verkefni sem þetta sé stórt jákvætt skref fyrir samfélagið allt.