Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

7. fundur
25. ágúst 2015 kl. 16:30 - 17:45
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir formaður
Kristín Hermannsdóttir varaformaður
Snorri Snorrason aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Elín Freyja Hauksdóttir starfsmaður HSSA
Ásgerður Kristín Gylfadóttir starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Dagskrá
1.
Rekstarstaða HSU Hornafirði 2015
Málsnúmer 201503043
Reksturinn er í jafnvægi.
2.
Ársskýrsla HSSA
Málsnúmer 201406067
Framkvæmdastjóri kynnti ársskýrslu HSU Hornafirði fyrir árið 2014.
3.
Fæðingarstofa fyrir landsbyggðarkonur
Málsnúmer 201508026
Framkvæmdastjóra HSU Hornafirði barst bréf frá Björkinni þar sem einkarekin fæðingarstofa í Reykjavík fyrir landsbyggðarkonur er kynnt. Umræður sköpuðust um kostnað fjölskyldna vegna fæðingu barna en ljóst er að íbúar á landsbyggðinni þurfa að sækja fæðingarþjónustu fjarri heimabyggð með tilheyrandi kostnaði og óþægindum.
4.
Samningur um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu 2013-2016
Málsnúmer 201302012
Farið yfir stöðu mála en óskað var eftir gögnum frá heilbrigðisstofnuninni, ársreikningum, ársskýrslum fyrir árin 2013 og 2014 ásamt skýrsluformi frá Sjúkratryggingum Íslands sem hefur umsjón með úttekt á samningnum. Gögnin verða send um næstu mánaðamót.
5.
Öldrunarrannsókn
Málsnúmer 201508027
Framkvæmdastjóri hitti Janus Guðlaugsson varðandi öldrunarrannsókn sem hann er að undirbúa. Áhugi er fyrir því að Heilbrigðisstofnunin komi að verkefninu á einhvern hátt og verið er að vinna að því.