Fara í efni

Íbúaráð - Nes og Lón

1. fundur
11. október 2023 kl. 14:00 - 16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir formaður
Ásta Steinunn Eiríksdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Hrægámur í Lóni
Málsnúmer 202309087
Hrægámur í Lóni hefur verið færður að Hvammi og hefur borið á því að gámurinn er oft fullur þegar komið er að honum og veldur það vandræðum.
Íbúaráð óskar eftir að bragabót verði gerð á losun á hrægámi í Lóni og upplýsingar um gámana verða aðgengilegar.
2.
Frístundamöguleikar grunnskólabarna í dreifbýli
Málsnúmer 202309103
Íbúaráð óskar eftir upplýsingum um hvernig ferðum til og frá tómstundastarfi fyrir börn í dreifbýli og aðstöðu fyrir börn sem eru að bíða eftir að fra í frístundir.
Frístundaakstur er einu sinni á dag frá Höfn.
3.
Félagsheimili sveitarfélagsins
Málsnúmer 202310043
Íbúaráð óskar eftir upplýsingum varðandi rekstur og notkun á félagsheimilinu Mánagarði, hver hefur umsjón með húsinu, þrif og frágang eftir notkun. Einnig óskar ráðið eftir að planið og aðkoma að húsinu sé betur upplýst.
4.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202303123
Brynja fór yfir hvað fellst í vinnu við endurskoðun á aðalskipulagi og áhrif þess á dreifbýlið.
5.
Skráningardagar í leikskóla
Málsnúmer 202307021
Þórgunnur kynnti fyrirkomulag skráningardaga í leikskólum sveitarfélgasins.
í máli hennar kom fram að unnið hefur verið að innleiðingu svokallaðra skráningadaga í leikskólanum. Í þeim felst að teknir verða upp 20 skráningardagar á ári þar sem ekki er reiknað með börnum í leikskólann nema þau séu sérstaklega skráð í skólann þessa daga. Þetta er gert til að koma til móts við fulla styttingu vinnuvikunnar í leikskólum og verður reynt að koma stórum hluta styttingar hjá starfsfólki að á þessum dögum. Foreldrar greiða sérstaklega fyrir skráningardagana en á móti verða leikskólagjöld lækkuð sem nemur einum mánuði á ári.
Það kom fram í máli Þórgunnar að málið er á reynslutíma.