Íbúaráð - Nes og Lón
2. fundur
19. desember 2023
kl.
14:00
-
16:00
Mánagarður
Nefndarmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
varamaður
Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir
aðalmaður
Ásthildur Gísladóttir
aðalmaður
Ásta Steinunn Eiríksdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Félagsheimili sveitarfélagsins
Gunnar Ingi sýndi íbúaráði aðstöðuna í Mánagarði og fór yfir notkunina á húsinu og hvaða viðhald hafi átt sér stað síðustu ár. Það kom fram að ekkert viðhald hafi átt sér stað og enginn húsvörður sjái um húsið.
Íbúaráði þykir miður hve umgengni í Mánagarði er slæm.
Íbúaráð bendir á að nauðsynlegt er að húsvörður sjái um Mánagarð og fylgi útleigu og sjái um að húsið sé þrifið.
Einnig ályktar íbúaráð að nauðsynlegt sé að vinna lágmarks viðhald á húsinu og hvetur til þess að endurnýja ljósin svo hægt sé að nota þau þegar fólk er að leigja salinn.
Íbúaráði finnst mjög miður að heimamenn geti ekki leigt Mánagarð undir erfidrykkjur og hvetur til þess að sveitarfélagið endurskoði reglur um útleigu Mánagarðs og finni leið í samstarfi við fimleikadeildina að lausn málsins.

2.
Umgengni í Laxárdal og við Laxá
Léleg umgengni er við hrægáminn Laxárdal því miður er fólk að setja almennt rusl í hann, íbúaráð bendir á að úrgangi á að skila á móttökustöðina á Höfn. Merkja þarf hrægáminn með upplýsingum um hvert á að hringja ef hann er fullur og þarf að losa hann. Mikið er um að fólk sé með lausa hunda við Laxá þar sem ekki er tekið upp eftir þá einnig ber á að lausaganga hunda trufli störf þungra vinnuvéla og áreiti fé sem er þar í girðingu.
3.
Þjóðvegur 1 - viðhald og snjóruðningur
Varðandi girðingu á Þjóðvegi 1 frá Almannaskarði að Hornafjarðarfljótum þá kom fram að girðingin er opin við Brekkubæ, Millulæk og Hestavöll. Vegagerðin hefur sent þeim sem hafa merkt veginn sinn bréf þar sem mælst er til að ekki megi merkja vegin einkaveg ef þjónusta á heimreiðina.
Íbúaráð vill benda Vegagerðinni á að þeir sem merkja heimreiðina, einkavegur er vegna þess að mikil umferð ferðamanna eru á vegunum án þess að þeir eigi erindi þar um.
Íbúaráð óskar eftir fundi með Vegagerðinni.
Íbúaráð óskar eftir fundi með Vegagerðinni.