Fara í efni

Íbúaráð - Nes og Lón

6. fundur
18. nóvember 2024 kl. 16:15 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir aðalmaður
Ásthildur Gísladóttir aðalmaður
Ásta Steinunn Eiríksdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Félagsheimili sveitarfélagsins
Málsnúmer 202310043
Hafin er vinna við að gera úttekt á netkerfi og tæknibúnaði í öllum félagsheimilum sveitarfélagsins. Keyptur verður sá búnaður sem þarfnast í hvert félagsheimili og nettengingar lagaðar þar sem við á.
Íbúaráð fagnar þessu erindi og vonar að búnaður og net verði komið upp sem fyrst.
2.
Málefni búfjár í sveitarfélaginu
Málsnúmer 202411002
Á umhverfis- og skipulagssviði er hafin vinna við að skoða í heild sinni málaflokkinn búfjárhald í sveitarfélaginu til þess að skerpa línurnar á hlutverki sveitarfélagsins í þeim málum sem um leið ætti að auðvelda samskipti og samvinnu við búfjáreigendur.
Íbúaráð lýsir yfir ánægju með að þessi mál séu skoðuð og óskar eftir að fá að fylgjast með framvindu mála.
3.
3ja fasa rafmagn í Lóni
Málsnúmer 202411051
Rarik hefur ákveðið að leggja þriggja fasa rafmang í Lóni árið 2025 í rúmlega helming sveitarinnar vestan frá en seinni hlutann er áætlað að leggja tveimur árum seinna.
Íbúaráð óskar eftir að sveitarfélagið beiti sér fyrir því að þriggja fasa rafmagn verði lagt í alla sveitina á sama tíma.
4.
Kjörstaðir í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 202206063
Á fundi bæjarráðs 22.10.2024 var ákveðið að sameina kjördeildir í Mánagarði og Heppuskóla yrðu sameinaðar í Heppuskóla. Lagt fram til upplýsinga.
Meirihluti íbúaráðs lýsir yfir mikilli óánægju með þessa ákvörðun og skorar á bæjarstjórn að endurskoða ákvörðunina svo áfram verði kjördeild í Mánagarði.