Fara í efni

Íbúaráð Öræfum

2. fundur
11. desember 2023 kl. 14:00 - 16:20
í Hofgarði
Nefndarmenn
Sunneva Björk Helgadótir formaður
Matthildur U Þorsteinsdóttir aðalmaður
Madalin-lonut Huminiuc aðalmaður
Jolanta Maria Biel
Jón Ágúst Guðmundsson
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Eldri borgarar í dreifbýli
Málsnúmer 202310009
Farið var yfir minnisblað sviðsstjóra Velferðarsviðs um framboð á þjónustu fyrir eldri borgara í dreifbýli/Öræfum.
Íbúaráð mun halda fund með eldri borgurum í janúar og óskar eftir að félagsmálastjóri komi á fundinn og kynni þá þjónustu sem sveitarfélagið býður upp á fyrir eldri borgara.
2.
Veglokanir og aðgerðir í stormviðri
Málsnúmer 202310010
Íbúaráð óskaði eftir upplýsingum frá Vegagerðinni um veglokanir í stormvirði, svar frá Vegagerðinni lagt fram.
Íbúaráð hefur áhyggjur af þjóðvegurinn í Öræfum er of þröngur, sér í lagi er Kúadalsbrekka hættulegur og hafa orðið alvarleg slys á þeim stað.
Íbúaráð óskar eftir áætlun Vegagerðarinnar á Þjóðvegi 1 í Öræfum.
3.
Sorpmál 2023
Málsnúmer 202310160
Farið var yfir sorpmál í sveitarfélaginu og vandamál sem tengjast sorpi sem ferðamenn skilja eftir sig á hinum ýmsum stöðum.
Íbúaráð hvetur til þess að sveitarfélagið, ríkið og þjóðgarðurinn upplýsi ferðamenn um hvar þeir komist á klósett og losað sig við rusl. Íbúaráð ræðir möguleika þess að auglýsa betur staðsetningu á almenningssalernum.
Einnig hvetur íbúaráð til þess að ferðamenn borgi fyrir að henda rusli á þeim stöðum sem þeir borga fyrir að leggja bílum sínum sem er einnig hægt að gera á fleiri stöðum og hafa fleiri og stærri rusla ílát sem eru fyrir flokkað rusl.
4.
Ljósleiðarakerfi í Öræfum
Málsnúmer 202311098
Gögn um breytingar á kerfinu í Öræfum lögð fram til kynningar.
Íbúaráð óskar eftir að framtíðar stefnu sveitarfélagsins í netöryggi í Öræfum.