Fara í efni

Íbúaráð Öræfum

4. fundur
5. september 2024 kl. 14:00 - 16:45
í Hofgarði
Nefndarmenn
Sunneva Björk Helgadótir formaður
Jón Ágúst Guðmundsson varamaður
Laurent Philippe Joseph Jegu varamaður
Starfsmenn
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202303123
Sveitarfélagið Hornafjörður vinnur að endurskoðun aðalskipulags. Nokkur atriði snúa sérstaklega að Öræfasveit og óskað er eftir samtali um nokkur atrið. Vegi í náttúru Íslands sem eru vegir, aðrir en þjóðvegir, bæði á hálendi og á láglendi. Uppbyggingu og staðsetningu íbúðabyggðar. Færslu á þjóðvegi. Það sem leitað er eftir eru sjónarmið íbúaráðs að þessu sinni. Einnig er fyrirhugað að halda almennan íbúafund í Öræfum um þessi mál, tillögur að fundartíma og öðrum málum sem þar ættu að vera á dagskrá væru vel þegin.
Íbúaráð fagnar opnum fundi í Öræfum og hvetur aðra íbúa til þess að mæta. Lagt er til að fundurinn verði haldinn í október, á þeim tíma sem fólk er búið í vinnu á milli 16:00 og 17:00 í miðri viku þegar fólk er heima og að hann verði auglýstur með góðum fyrirvara .
2.
Fjárhagsáætlun 2025-2027
Málsnúmer 202312045
Bæjarstjóri fer yfir undirbúning fjárhagsáætlunnar fyrir árið 2025. Óskað er eftir umræðum og áherslum sem íbúaráð myndi vilja sjá í fjárhagsáætlun fyrir sitt svæði.
Íbúaráð þakkar bæjarstjóra fyrir gott og opið samtal og fagnar vilja sveitarfélagsins til uppbyggingar á svæðinu sem styður við samfélagið. Rætt var um sorpmál, ljósleiðara, hitaveitu, tómstundastarf og uppbyggingu nýs félagshúsnæðis.
Íbúaráð vil eiga samtal við íbúa á svæðinu og taka saman hugmyndir og tillögur fyrir næsta fund.

3.
Viðvera starfsmanna í sveitum
Málsnúmer 202409006
Lagt er til að einstaka starfsmenn sveitarfélagsins verði með opna skrifstofutíma í dreifbýli ákveðið oft á ári. Óskað er eftir tillögum íbúaráðs um fyrirkomulagið.
Íbúaráð fagnar hugmyndinni og vill gjarnan taka þátt í að þróa hana áfram.
4.
Hverfisráð - Íbúaráð
Málsnúmer 202211120
Íbúaráð Suðursveitar og Mýra og Nesja og Lóns lögðu til við bæjarráð að íbúaráðin fái að starfa áfram umfram árið sem upp var lagt með í erindisbréfi íbúaráða. Bæjarráð var jákvætt fyrir þessu og óskaði eftir því að núverandi fulltrúar íbúaráða sitji út kjörtímabilið sé það vilji fulltrúanna.
Íbúaráð er jákvætt fyrir því að sitja út kjörtímabilið, en óskar eftir frest til þess að svara fram að næsta fundi þegar samtal hefur átt sér stað við alla nefndarmenn.
5.
Helsingjar í Austur Skaftafellssýslu
Málsnúmer 202409003
Umhverfisstofnun boðaði hagsmunaaðila til fundar vegna veiðistjórnunar á helsingja þann 16. ágúst sl. Austur-Grænlands-stofn helsingja, sem íslenski stofninn tilheyrir, hefur rýrnað mjög á allra síðustu árum. Bæði varð stofninn fyrir verulegum afföllum vegna bráðrar fuglaflensu en einnig hefur viðkomubrestur verið viðvarandi síðustu tvö sumur. Stofninn var metinn um 57.000 fuglar í mars 2024 og er því kominn nærri neðri viðmiðunarmörkum AEWA samningsins sem miðast við 54.000 fugla að vori. Taldar eru 24% líkur á að stofninn hafi nú þegar farið undir fyrrgreind mörk. Í júní á þessu ári sendi vinnuhópur EGMP (e. European Goose Management Platform), undir AEWA, skilaboð um að þær aðildaþjóðir sem bera ábyrgð á helsingjastofninum á varptíma, farleiðum og vetrarstöðvum (Ísland og Bretland) komist að samkomulagi um hvernig megi takmarka veiðar. Umhverfisstofnun sendi tillögur til ráðherra um aðgerðir sem felast í syttu veiðitímabili helsingja ásamt sölubanni.
Íbúaráð vill þakka skipulagsfulltrúa fyrir að vekja athygli á þessu máli. Jón Ágúst Guðjónsson ræddi um sjáanlega fækkun fugla í sínu nærumhverfi, Freysnesi. Íbúaráð vill ítreka mikilvægi þess að lifa í sátt og samlyndi við náttúruna og leggur áherslu á samráð og áframhaldandi samtal milli sveitarfélagsins og íbúa þess.