Íbúaráð Öræfum
6. fundur
17. febrúar 2025
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Matthildur U Þorsteinsdóttir
aðalmaður
Jolanta Maria Biel
varamaður
Jón Ágúst Guðmundsson
formaður
Starfsmenn
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Félagsheimili sveitarfélagsins
Umræður um búnað og aðgang að aðstöðu í Hofgarði.
Íbúaráð leggur áherslu á að aðgengi að interneti á svæðinu öllu verði tryggt enda varðar það öryggi íbúa og óskar eftir að fá upplýsingar um hvert framhaldið er og hvaða úrlausnir eru í boði fyrir íbúa.
2.
Læknis og hjúkrunarþjónsuta í Öræfum
Óskað er eftir stöðu mála um heilsugæslusel í Öræfum.
Íbúaráð ítrekar mikilvægi þess að aðgengi að reglubundinni heilbrigðisþjónustu sé bætt enda þurfa íbúar Öræfa að keyra langar vegalengdir eins til þess að sækja heilbrigðisþjónustu eins og staðan er núna. Heilsugæslusel í svipaðri mynd eins og áður var myndi bæta þjónustustig og lífsgæði íbúa á svæðinu til muna. Íbúaráð leggur áherslu á að þessu máli sé fylgt eftir og vonast eftir því að komið verði á heilsugæsluseli í Öræfum.
3.
Menningartengd starfsemi í Öræfum
Forstöðumaður menningarmiðstöðvar í fjarfundi og ræðir menningartengda starfsemi í Öræfum.
Íbúaráð þakkar forstöðumanni Menningarmiðstöðvar fyrir gott spjall. Rætt var um að stefna að samráðsfundi með listasamfélaginu í Öræfum þar sem farið væri yfir stuðning og aðstöðu í boði.
4.
Frístundastarf í Öræfum
Áhugi er hjá íbúum á að nota Hofgarð meira sem félagsmiðstöð og fyrir íþróttaiðkun óskað er eftir svörum um hvaða stuðningur stendur til boða til þess að efla frístundastarf á svæðinu.
Niðurstaða fundarins var að umsjónaraðilar hússins kæmu saman til þess að finna lausn á því hvernig haga mætti aðgengi að húsinu svo aðstaðan nýtist sem best fyrir alla sem þess þurfa.
5.
Svínafellsheiði - útgáfa hættumats
Veðurstofan hefur tilkynnt að íbúafundur verði í Öræfum vegna útgáfu á hættumati vegna Svínafellsheiðar 27. mars nk.
Íbúaráð óskar eftir áframhaldandi stuðning til að sjá til þess að niðurstaða fáist á fundinum sem styður við uppbyggingu á svæðinu.