Fara í efni

Íbúaráð Öræfum

7. fundur
19. júní 2025 kl. 13:00 - 15:00
í Hofgarði
Nefndarmenn
Jolanta Maria Biel
Madalin-lonut Huminiuc aðalmaður
Jón Ágúst Guðmundsson formaður
Starfsmenn
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Netmál í Öræfum
Málsnúmer 202505098
Verkefnastjóri á mannvirkjasviði mætti í fjarfundabúnaði og fór yfir stöðuna á ljósleiðaramálum í Öræfum. Til stendur að leggja nýjann streng sem bæta ætti netsamband á svæðinu. Ekki liggur fyrir hvenær strengurinn verður lagður.
Íbúaráð leggur áherslu á að netsamband verði lagað á svæðinu, bæði öryggisins vegna og fyrir framþróun samfélagsins. Íbúaráð óskar eftir því að sveitarfélagið vinni að því með Mílu eins fljótt og kostur er.
2.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202303123
Sviðsstjóri umhverfis - og skipulagssviðs mætir á fund og fer yfir endurskoðun aðalaskipulags.Öll gögn sem málið varðar eru undir þessum hlekk https://skipulagsgatt.is/issues/2023/11Endilega kynnið ykkur gögnin fyrir fundinn.
Íbúaráð þakkar umhverfis- og skipulagsstjóra fyrir kynninguna. Íbúaráð hvetur alla til þess að kynna sér gögnin á skipulagsgáttinni, horfa á kynningarfundina og senda inn ábendingar og athugasemdir ef þörf krefur. Þetta er hagsmunamál fyrir alla og brýnt að íbúar gefi sér tíma til þess að gefa umsögn.
3.
Búfjársamþykkt Fjallskilasamþykkt
Málsnúmer 202504074
Drög að nýrri búfjársamþykkt lögð fram til upplýsinga og umræðu.
Íbúaráð leggur til að bændur og landeigendur á svæðinu fái samþykktina til yfirlestrar en gerir ekki athugasemdir við samþykktina að öðru leyti.
4.
Svínafellsheiði - útgáfa hættumats
Málsnúmer 202412009
Í tillögu að nýju aðalskipulagi hefur sveitarfélagið lagt til hvernig nýta megi land á hugsanlegu áhrifasvæði skriðunnar.
Íbúaráð harmar að forsendur erndurmatsins hafi ekki verið endurmetnar og ítrekar mikilvægi þess að það verði gert. Að sama skapi fagnar íbúaráð því að tillögur hafa verið gerðar um hvernig nýta megi landið og hvetur íbúa til þess að kynna sér gögnin í aðalskipulaginu vel.
5.
Framtíðarsýn um málefni aldraðra 2026-2030
Málsnúmer 202412045
Sviðsstjóri velferðarsviðs mætir á fund og fer yfir vinnuna sem hefur átt sér stað í mótun framtíðarsýn um málefni aldraðra 2026-2030.
Íbúaráð þakkar sviðsstjóra velferðarsviðs fyrir kynninguna.
Ljóst er að aðstæður í Öræfum eru krefjandi vegna fjarlægðar frá þjónustukjörnum og var ánægjulegt að heyra að vilji og aðgerðir verða teknar til þess að koma til móts við íbúa í Öræfum sem þurfa þjónustu.
Fyrirhugaður kynningarfundur verður haldin á haustmánuðum og hvetur íbúaráð íbúa til þess að fjölmenna á hann
6.
Íþróttamannvirki í Öræfum
Málsnúmer 202505042
Fræðslu- og frístundanefnd vísaði málinu um íþróttamannvirki í Öræfum til umræðu í íbúaráði Öræfinga.
Aðstöðu fyrir líkamsrækt hefur verið komið upp í Hofgarði með ágætis árangri. Þó telur íbúaráð að mikilvægt sé að byggð upp verði aðstaða til frambúðar bæði til íþróttaiðkunnar sem og heilbrigðisþjónustu, eins og aðstöðu fyrir sjúkraþjálfun og læknaþjónustu.