Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar
1. fundur
2. nóvember 2023
kl.
16:00
-
18:10
í Holti
Nefndarmenn
Ari Hannesson
Bjarni Haukur Bjarnason
Erla Rún Guðmundsdóttir
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Félagsheimili sveitarfélagsins
Íbúaráð óskar eftir að sveitarfélagið sjái um að félagsheimiíð Holt fái ný útiljós og umhverfið verði snyrt og gagngerð endurskoðun verði gerð á rafmagni hússins sem slær út þegar tæki eru í gangi.
2.
Þjóðvegur 1 - viðhald og snjóruðningur
Íbúaráð óskaði eftir upplýsingum um þjóðveg 1 varðandi girðingar, snjóruðning og almenna þjónustu.Eiga girðingar að vera fjárheldar? Hve oft er rutt þegar snjóar og á að breikka veginn frá Hrollaugsstöðum og austur á Höfn?
Í svari frá Vegagerðinni kemur fram að Vegagerðin leggur nýjar girðingar en það er landeigenda að halda girðingum við með styrk frá Vegagerðinni.
Á þjóðveginum er farið í eftirlit kl. 5:30 ef veðurhorfur er óljósar. Ef ákvörðun um þjónustu liggur fyrir að morgni fær þjónustuaðili Vegagerðarinnar boð á sama tíma.
Frá Djúpavogi, Höfn og Klaustri fer þjónustubíll fyrir klukkan 6:00 viðbragðstími er 30 mín.
Leiðin milli Hafnar og Skaftafells er í þjónustuflokki tvö og er þjónusta alla virka dag milli 7:30 og 21:30 og um helgar frá 8:00 til 19:00.
Íbúaráð krefst þess að Vegagerðin endurskoði snjóruðningstímann, það er óásættanlegt að það sé ekki byrjað fyrr en kl. 7:30.

3.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Brynja fór yfir vinnu við endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins sem er í vinnslu.Íbúafundir verða haldnir í dreifbýlinu í nóvember.
Íbúaráð hvetur íbúa í dreifbýli til þess að mæta á fundina og kynna sér framtíðarstefnu í skipulagsmálum svo stefnan sé unnin að vilja og þörfum íbúa.
4.
Sorpmál 2023
Breyting verður á sorpmálum í sveitarfélaginu um áramót.
Ílátum fjölgar vegna lagabreytinga. Í skoðun er að bjóða upp á að fá ílát undir lífrænt efni í dreifbýlinu.
Ílátum fjölgar vegna lagabreytinga. Í skoðun er að bjóða upp á að fá ílát undir lífrænt efni í dreifbýlinu.
5.
Refa- og minkaveiðar
Umræður um fjölgun á ref og grenjum í sveitarfélaginu.
6.
Ágangur fugla
Í sumar hefur mikið borið á að fugl hafi verið í ræktarlandi bænda og í mörgum tilfellum náð að klára alla kál uppskeru einnig er mikill fugl í túnum.
Íbúaráð hefur áhyggjur af ágangi álfta, helsingja og gæsa í túnum á löndum bænda í sveitarfélaginu. Tjón af völdum fugla er töluvert.
Gögn frá Búnaðarsambandinu frá 2015 sýna að uppskera er 33% minni þar sem flugin er, en fuglum hefur fjölgað töluvert frá þeim tíma.
Íbúaráð hvetur til þess að skotveiðitímabil verði rýmkað.
Gögn frá Búnaðarsambandinu frá 2015 sýna að uppskera er 33% minni þar sem flugin er, en fuglum hefur fjölgað töluvert frá þeim tíma.
Íbúaráð hvetur til þess að skotveiðitímabil verði rýmkað.