Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar
2. fundur
6. desember 2023
kl.
14:00
-
16:00
í Holti
Nefndarmenn
Ari Hannesson
Bjarni Haukur Bjarnason
Erla Rún Guðmundsdóttir
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Félagsheimili sveitarfélagsins
Íbúaráð fundaði að þessu sinni í Hrollaugsstöðum og skoðaði þær breytingar sem félagar í Ungmennafélaginu Vísi hafa verið að vinna að fyrir sína félaga. Félagsaðstaða er í kjallara undir sviði þar sem búið er að mála og setja gólfefni ásamt því að kaupa leiktæki.
Íbúaráð fagnar framtaki Ungmennafélagsins Vísis og hvetur íbúa í Suðursveit að nýta sér aðstöðuna.
2.
Þjóðvegur 1 - viðhald og snjóruðningur
Starfsmenn funduðu með Vegagerðinni þar sem umræða um girðingar meðfram þjóðvegi 1, þar kom fram í máli starfsmanna að mikilvægt er að girða eða gera beitarhólf við þjóðveginn þar sem mesti sauðfjárdauði er vegna ákeyrslu bifreiða.
Íbúaráð óskar eftir að fá fund með fulltrúum Vegagerðarinnar og bæjarráði.
Snjóruðningur, Vegagerðin leggur áherslu á að ryðja Þjóðveg 1 þannig að vegurinn sé auður fyrir kl. 07:30.
Íbúaráð óskar eftir að fá fund með fulltrúum Vegagerðarinnar og bæjarráði.
Snjóruðningur, Vegagerðin leggur áherslu á að ryðja Þjóðveg 1 þannig að vegurinn sé auður fyrir kl. 07:30.
3.
Eldri borgarar í dreifbýli
Minnisblað velferðarsviðs þar sem farið er yfir hvaða þjónusta er veitt fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu. Þar kom fram ma. hvaða rétt aldraðir hafa í sveitarfélaginu bæði akstursþjónustu og heimilisþrifa.
Íbúaráð hvetur velferðarsvið að kynna fyrir íbúum sveitarfélagsins hvaða þjónusta er í boði fyrir eldri borgara.
4.
Frístundamöguleikar grunnskólabarna í dreifbýli
Minnisblað tómstundafulltrúa um frístundamöguleika grunnskólabarna í dreifbýli lagt fram.