Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar
4. fundur
11. apríl 2024
kl.
14:00
-
16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ari Hannesson
Bjarni Haukur Bjarnason
Erla Rún Guðmundsdóttir
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Kjörstaðir í Sveitarfélaginu Hornafirði
Bæjarráð óskar eftir umsögn íbúaráðs um tillögu bæjarráðs um fækkun kjörstaða í sveitarfélaginu um tvo þá verði kjörstaðir í Hofgarði, Hrollaugsstöðum og Höfn. Með þeirri tillögu er kjörstöðum fækkað um tvo, þ.e. í Nesjum og á Mýrum.
Íbúaráð Suðursveitar og Mýra hvetur bæjarráð til þess að fækka ekki kjörstöðum í sveitarfélaginu. Kjörstaðir í félagsheimilum eru hluti af menningu og hefur samfélagsleg áhrif.
Einnig telur íbúaráð að kjörsókn muni vera minni ef kjörstöðum er lokað, oft eru kosningar á þeim tima sem mikið er að gera í dreifbýli.
Einnig telur íbúaráð að kjörsókn muni vera minni ef kjörstöðum er lokað, oft eru kosningar á þeim tima sem mikið er að gera í dreifbýli.
2.
Menningarstefna 2023
Bæjarráð vísar nýrri menningarstefnu til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
3.
Hverfisráð - Íbúaráð
Íbúarráð Suðursveitar og Mýra leggur til við bæjarráð að íbúaráð fái að starfa áfram í ljósi þess að ráðið hefur starfað einungis einn vetur og hefur áhuga á halda áfram með þau málefni sem það hefur unnið að.
4.
Girðingar við Þjóðveg 1
Íbúaráð hvetur til þess að sveitarfélagið fari í samtal við Vegagerðina um girðingar við Þjóðveg 1.
Einnig lögð áhersla á að eins girðing sé lögð í öllu sveitarfélaginu.
Einnig lögð áhersla á að eins girðing sé lögð í öllu sveitarfélaginu.