Fara í efni

Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar

5. fundur
11. september 2024 kl. 14:00 - 17:00
í Holti
Nefndarmenn
Ari Hannesson
Bjarni Haukur Bjarnason
Erla Rún Guðmundsdóttir
Starfsmenn
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2025-2027
Málsnúmer 202312045
Bæjarstjóri fer yfir undirbúning fjárhagsáætlunnar fyrir árið 2025.Óskað er eftir umræðum og áherslum sem íbúaráð myndi vilja sjá í fjárhagsáætlun fyrir sitt svæði.
Íbúaráð fagnar umræðunni og leggur til að úttekt verði gerð á aðstöðunni í Holti í samráði við íbúaráð, bæði innan og utan húss til þess að fá heildarsýn á hvað þarfnast úrbóta. Einnig er óskað eftir því að tekið verði til í húsinu og munir og gögn sem ekki eru í notkun verði fjarlægð. Lagt er til að sama fyrirkomulag gildi um Holt og á Hrollaugsstöðum og settur verði sérstakur umsjónarmaður hússins. Óskað er eftir fullbúnum fundarbúnaði bæði á Holt og á Hrollaugsstaði.
Einnig er lagt til að malbikað verði fyrir utan Hrollaugsstaði og sérstök bílastæði skilgreind. Þá er líka bent á að sorpstöðin vestan megin við húsið er óþörf og mætti fjarlæga.
2.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202303123
Sveitarfélagið Hornafjörður vinnur að endurskoðun aðalskipulags. Umhverfis- og skipulagsstjóri fer yfir stöðuna og óskar eftir aðstoð íbúaráðs við merkingu slóða.
Íbúaráð er tilbúið að aðstoða við merkingar á slóðum og hvetur íbúa í Suðursveit og Mýrum til þess að svara vefkönnun þar sem leitað er til landeigenda og ábúenda um stöðu og þróun landnotkunar á þeirra jörðum eða landareignum. Könnunina má finna á www.hornafjorduradalskipulag.is
3.
Helsingjar í Austur Skaftafellssýslu
Málsnúmer 202409003
Umhverfisstofnun boðaði hagsmunaaðila til fundar vegna veiðistjórnunar á helsingja þann 16. ágúst sl. Austur-Grænlands-stofn helsingja, sem íslenski stofninn tilheyrir, hefur rýrnað mjög á allra síðustu árum. Bæði varð stofninn fyrir verulegum afföllum vegna bráðrar fuglaflensu en einnig hefur viðkomubrestur verið viðvarandi síðustu tvö sumur. Stofninn var metinn um 57.000 fuglar í mars 2024 og er því kominn nærri neðri viðmiðunarmörkum AEWA samningsins sem miðast við 54.000 fugla að vori. Taldar eru 24% líkur á að stofninn hafi nú þegar farið undir fyrrgreind mörk. Í júní á þessu ári sendi vinnuhópur EGMP (e. European Goose Management Platform), undir AEWA, skilaboð um að þær aðildaþjóðir sem bera ábyrgð á helsingjastofninum á varptíma, farleiðum og vetrarstöðvum (Ísland og Bretland) komist að samkomulagi um hvernig megi takmarka veiðar. Umhverfisstofnun sendi tillögur til ráðherra um aðgerðir sem felast í syttu veiðitímabili helsingja ásamt sölubanni.
Íbúaráð vill ítreka að veiðitími var fyrir of stuttur og því mikil vonbrigði að hann sé styttur enn frekar enda séu til gögn sem styðji við að það sé ekki heppilegt.
4.
Hverfisráð - Íbúaráð
Málsnúmer 202211120
Íbúaráð Suðursveitar og Mýra og Nesja og Lóns lögðu til við bæjarráð að íbúaráðin fái að starfa áfram umfram árið sem upp var lagt með í erindisbréfi íbúaráða. Bæjarráð var jákvætt fyrir þessu og óskaði eftir því að núverandi fulltrúar íbúaráða sitji út kjörtímabilið sé það vilji fulltrúanna.
Íbúaráð er jákvætt fyrir því að sitja áfram út kjörtímabilið.
5.
Viðvera starfsmanna í sveitum
Málsnúmer 202409006
Lagt er til að einstaka starfsmenn sveitarfélagsins verði með opna skrifstofutíma í dreifbýli ákveðið oft á ári. Óskað er eftir tillögum íbúaráðs um fyrirkomulagið.
Íbúaráð fagnar hugmyndinni og vill gjarnan taka þátt í að þróa hana áfram.
6.
Viðhald rétta á Mýrum og Suðursveit
Málsnúmer 202409033
Lögréttir sveitarélagsins í Suðursveit og Mýrum eru úr sér gengnar og nýtast ekki vegna breyttra forsenda í búskapi á svæðinu.
Íbúaráð óskar eftir að gerð verði úttekt á réttum í Suðursveit og Mýrum til þess að skoða hvar úrbóta sé þörf.