Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar
6. fundur
13. nóvember 2024
kl.
13:00
-
15:00
í Holti
Nefndarmenn
Ari Hannesson
Bjarni Haukur Bjarnason
Erla Rún Guðmundsdóttir
Starfsmenn
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Félagsheimili sveitarfélagsins
Hafin er vinna við að gera úttekt á netkerfi og tæknibúnaði í öllum félagsheimilum sveitarfélagsins. Keyptur verður sá búnaður sem þarfnast í hvert félagsheimili og nettengingar lagaðar þar sem við á.
Íbúaráð lýsir yfir ánægju með að net og búnaður verði sett upp í félagsheimilin og vonar að með þessu nýtast húsin betur. Óskað er eftir leyfi til þess að taka til í Holti og grisja hluti sem þar eru.
2.
Málefni búfjár í sveitarfélaginu
Á umhverfis- og skipulagssviði er hafin vinna við að skoða í heild sinni málaflokkinn búfjárhald í sveitarfélaginu til þess að skerpa línurnar á hlutverki sveitarfélagsins í þeim málum sem um leið ætti að auðvelda samskipti og samvinnu við búfjáreigendur.
Íbúaráð fagnar því að þessi vinna sé farin af stað og óska eftir að senda inn athugasemdir frá landeigendum og búfjárhöldurum með von um að þær geti nýst í þessa vinnu.
3.
Ljósleiðari Suðursveit
Tengikerfi fyrir ljósleiðara í Suðursveit sem staðsett er á Hrollaugsstöðum slær ítrekað út. Þegar álagið á netinu er mikið ofhitnar skápurinn sem tengikerfið er staðsett í og netið dettur út á stóru svæði.
Íbúaráð óskar eftir að skjótum viðbrögðum við málinu og að teknar verði viðeigandi ráðstafanir til þess að netið á svæðinu virki eins og skildi.
4.
Söfnun á heyrúlluplasti
Notað heyrúlluplast er oft á tíðum erfitt að geyma vegna magns sem safnast og eins hefur reynst vandamál að hafa plastið aðgengilegt fyrir þjónustuaðila sem sækja það. Finna þarf hentuga lausn fyrir bæði notendur og þjónustuaðila.
Íbúaráð óskar eftir að þjónustuaðili og sveitarfélagið ræði saman um hagkvæma og hentuga lausn fyrir alla viðkomandi á hvernig best sé að geyma og skila notuðu rúlluplasti.