Fara í efni

Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar

8. fundur
20. júní 2025 kl. 13:00 - 15:30
í Holti
Nefndarmenn
Ari Hannesson
Bjarni Haukur Bjarnason
Erla Rún Guðmundsdóttir
Starfsmenn
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Framtíðarsýn um málefni aldraðra 2026-2030
Málsnúmer 202412045
Sviðsstjóri velferðarsviðs mætir á fund og fer yfir vinnuna sem hefur átt sér stað í mótun framtíðarsýn um málefni aldraðra 2026-2030.
Íbúaráð þakkar fyrir góða kynningu og lýsir yfir ánægju með vinnuna sem hefur átt sér stað. Til stendur að halda íbúafundi í haust þar sem vinnan verður kynnt og hvetur íbúaráð alla íbúa sem málið varðar að fjölmenna á fundina.
2.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202303123
Sviðsstjóri umhverfis - og skipulagssviðs mætir á fund og fer yfir endurskoðun aðalaskipulags.Öll gögn sem málið varðar eru undir þessum hlekk https://skipulagsgatt.is/issues/2023/11Endilega kynnið ykkur gögnin fyrir fundinn.
Íbúaráð þakkar umhverfis- og skipulagsstjóra fyrir kynninguna. Íbúaráð hvetur alla til þess að kynna sér gögnin á skipulagsgáttinni, horfa á kynningarfundina, mæta á opnu fundina og senda inn ábendingar og athugasemdir ef þörf krefur. Þetta er hagsmunamál fyrir alla og brýnt að íbúar gefi sér tíma til þess að gefa umsögn.
3.
Búfjársamþykkt Fjallskilasamþykkt
Málsnúmer 202504074
Drög að nýrri búfjársamþykkt lögð fram til upplýsinga og umræðu.
Íbúaráð þakkar verkefnastjóra fyrir líflegar og góðar umræður. íbúaráð óskar eftir tíma til þess að fara betur yfir framlagða samþykkt og senda svo athugasemdir og ábendingar til verkefnastjóra. Eins óskar íbúaráð eftir því að haldin verði íbúafundur þar sem drögin verði kynnt áður en hún verði samþykkt.
4.
Símasamband í Suðursveit og Mýrum
Málsnúmer 202506063
Umræður um síversnandi símasamband á svæðinu. Sveitarfélagið er meðvitað um ástandið og hefur bent fjarskiptafyrirtækjum á vandamálið.
Öruggt símasamband er mikilvægt öryggistæki og ótækt að ekki skuli vera betri samband á svæðinu. Íbúaráð skorar á fjarskiptafyrirtækin að koma þessu í lag.