Öldungaráð
10. fundur
11. október 2022
kl.
14:00
-
15:00
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Páll Guðmundsson
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Albert Eymundsson
aðalmaður
Ólafía Ingibjörg Gísladóttir
aðalmaður
Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir
aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
fulltrúi heilsugæslu
Starfsmenn
Erla Björg Sigurðardóttir
félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði:
Erla Björg Sigurðardóttir
sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Heilsuefling 60 ára og eldri
Velheppnað og skemmtilegt málþing um heilsueflingu 60 ára og eldri var haldið í Ekrunni 5. október sl. í samvinnu við Bjartan lífsstíl. Bjartur lífsstíll er samstarfsverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Landssambands eldri borgara. Málþingið er hluti af heilsueflingarátaki 60 ára og eldri á landsvísu.
Lagt fram til kynningar og vakin er athygli á heimasíðu verkefnisins Bjartlif.is Þar má nálgast gagnlegar upplýsingar varðandi hreyfingu, mataræði ofl.
2.
Hugleiðingar vegna útskriftar íbúa á hjúkrunarheimili
Hugleiðingar Sigrúnar Huld Þorgrímsdóttur hjúkrunarfræðings um aðstæður færniskertra sem búa heima.
Í umræðu um stöðu heimaþjónustu og heimahjúkrunar á Höfn kom fram að þjónustan hefur verið samþætt undanfarin ár og hefur ekki breyst við að þjónustusamningi við SÍ var sagt upp. Þjónustan er á hendi þriggja aðila í dag og gengur vel.
3.
Félag trérennismiða á Íslandi
Félag trérennismiða á Íslandi hefur ákveðið að bjóða sveitarfélögum upp á samstarf um að kynna trérennismíði sem víðast og einkum að reyna að fá fleiri konur til að kynnast dásemdum rennsimíðinnar sem handverks og sköpunar. Hugmyndin er að sjálfboðaliði frá félaginu, einn eða fleiri, heimsæki tómstundastarf sveitarfélaganna og kynni félagið og sýni trérennsli. Viðkomandi sjálfboðaliði tekur þá með sér rennibekk og járn og annað það sem til þarf og eyðir stund með áhugasömum.
Öldungaráð fagnar tilboði félags rennismiða á Íslandi og felur starfsmanni að hafa samband við félagið og kanna möguleika á heimsókn til Hafnar.
4.
Fyrirspurn um augnlæknaþjónustu á Hornafirði
Rætt um vöntun á augnlæknaþjónustu í sveitarfélaginu.
Ester upplýsti um stöðu mála hjá HSU og lagt var til að hún komi á fund Félags eldri Hornfirðinga, upplýsi og leiðbeini varðandi þessi mál.