Fara í efni

Öldungaráð

11. fundur
16. janúar 2023 kl. 13:00 - 14:00
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Páll Guðmundsson aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Albert Eymundsson aðalmaður
Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir fulltrúi heilsugæslu
Starfsmenn
Erla Björg Sigurðardóttir félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði:
Erla Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Reglur um akstursþjónustu aldraðra
Málsnúmer 202104011
Tillaga að reglum um akstursþjónustu aldraðra og gjaldskrá var samþykkt á fundi velferðarnefndar 24.11.2022, með fyrirvara um að endurskoða útfærslu á þjónustunni þ.e. fjöldi ferða og tímasetningar ásamt gjaldtöku. Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Skaftfellingur
Málsnúmer 202003084
Umræða um áform atvinnu-og menningarmálanefndar um rafræna þróun í útgáfu Skaftfellings.
Öldungaráð fagnar framþróun í útgáfumálum Skaftfellings.