Öldungaráð
14. fundur
10. maí 2024
kl.
15:00
-
16:45
í Miðgarði
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Eiríkur Sigurðsson
aðalmaður
Páll Guðmundsson
aðalmaður
Albert Eymundsson
aðalmaður
Ólafía Ingibjörg Gísladóttir
aðalmaður
Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir
aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
fulltrúi heilsugæslu
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson
sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Menningarstefna 2023
Bæjarráð vísar nýrri menningarstefnu til umsagnar í nefndum sveitarfélagsins. Eyrún Helga Ævarsdóttir forstöðumaður Menningarmiðstöðvar fylgir menningarstefnunni eftir.
Eyrún Helga Ævarsdóttir kynnti menningarstefnu Sveitarfélagsins fyrir árin 2024-2030.
Góðar umræður um menningarstefnuna mynduðust í ráðinu þar sem meðal annars var snert á fjölmenningu og mikilvægi þess að geta náð til ólíkra hópa og þá sértaklega ólíkra hópa eldri borgara svo sem erlendra íbúa yfir 60 ára.
Rætt um safnamál í sveitarfélaginu og framtíðarsýn á þau. Allir sammála um að bæta og endurskoða þarf aðstöðu safnakosts sveitarfélagsins og skapa skýra framtíðarsýn um þau enda mikil tækifæri sem snúa t.d. að jöklasetri en myndi jafnframt byggja á menningu og byggðarsögu undir jökli.
Öldungaráð þakkar Eyrúnu Helgu kærlega fyrir góða kynningu.

2.
Mannréttindastefna
Bæjarráð vísaði mannréttindastefnunni til umsagnar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
Anna Birna kom inn á fund öldungaráðs og kynnti mannréttindastefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Góðar umræður um mismunun og fjölmenningu sköpuðust í ráðinu.
Öldungaráð þakkar Önnu Birnu kærlega fyrir góða kynningu.
Góðar umræður um mismunun og fjölmenningu sköpuðust í ráðinu.
Öldungaráð þakkar Önnu Birnu kærlega fyrir góða kynningu.
3.
Samþætt heimaþjónusta og heimahjúkrun
Verið hefur til skoðunar að taka upp samræmt matstæki við inntöku í þjónustu í Þjónustan heim. Það er álit starfsmanna að RAi matstækið sé best til þess fallið, auk þess sem innleiðing þess í heimahjúkrun er hluti af landsátaki í málefnum aldraðra, Gott að eldast.
Sigrún Bessý kemur á fund og kynnir innleiðingu á Rai-mati í Þjónustan heim. Rai-mat er staðlað matstæki sem nýtist við að meta þjónustuþörf íbúa sem sækja um stoðþjónustu hjá sveitarfélaginu. Um er að ræða verkfæri sem ætlað er að tryggja að veitt sé sú þjónusta sem þörf er á hverju sinni og að þjónustan skili sér til þeirra sem mest þurfi á henni að halda.
Einnig var rætt um stafræna þróun í þjónustunni og möguleika á að innleiða hugbúnað sem geti bætt samskipti þjónustunnar við þjónustuþega, bætt skráningar og innheimtu og bætti gæði hennar.
Öldungaráð þakkar Sigrún Bessý kærlega fyrir góða yfirferð.

4.
Endurbætur og viðhald í Ekru
Sviðsstjóra velferðarsviðs var falið það verkefni að skoða möguleika á því að endurnýja hluta húsbúnaðar í Ekrunni enda núverandi búnaður komið til árasinna. Farið yfir stöðu mála og næstu skref.
Beiðni barst sveitarfélaginu frá Félagi eldri Hornfirðinga um endurbætur á húsnæði og húsbúnaði Ekrunnar.
Niðurstaða þeirrar vinnu er að forgangraða húsbúnaði og óska eftir tilboðum í nýja stóla og borð í samkomusal félagsins í Ekru.
Farið var yfir fyrstu tilboð og umræður um þarfir í húsnæðinu sem og möguleika á endurbótum á þeim búnaði sem til staðar eru ræddar.

5.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Öldungaráð óskaði eftir að taka upp umræðu á fundinum vegna vinnu við endurskoðun aðalskipulags og hvernig horft væri til húsnæðisþarfa eldri borgara í þeim efnum.
Ásgerður Gylfadóttir gerði grein fyrir endurskoðun á aðalskipulagi og stöðunni á þeirri vinnu í dag. Þá gerði hún einnig grein fyrir að fyrri bókun öldungaráðs sem snýr að þörfum eldri borgara í málinu væri höfð til hliðsjónar við þá vinnu.
Góðar umræður sköpuðust í ráðinu og rætt um fjölbreyttar búsetuþarfir eldri borgara svo sem þjónustuíbúðir, almennar leiguíbúðir og hjúkrunarheimili með tilliti til staðsetningar og var nýtt Hagahverfi rætt sérstaklega í því samhengi.
Öldungaráð leggur áherslu á að mikilvægt sé að móta stefnu í húsnæðismálum eldri borgara og horft sé til framtíðar í þeim efnum þar sem ljóst er að þörfin muni aukast á næstu árum.