Fara í efni

Öldungaráð

16. fundur
17. desember 2024 kl. 14:00 - 15:30
í Miðgarði
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Eiríkur Sigurðsson aðalmaður
Páll Guðmundsson aðalmaður
Albert Eymundsson aðalmaður
Jóna Bára Jónsdóttir
Ari Jónsson
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Framtíðarsýn um málefni aldraðra 2026-2030
Málsnúmer 202412045
Stefnt er að því að vinna að framtíðarsýn og framkvæmdaáætlun í málefnum aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árin 2026-2030. Sviðsstjóri mun kynna hvaða þjónustuþættir falla undir vinnuna og óska eftir umræðum um hvernig öldungaráð sér þjónustuna fyrir sér.Á þessum fundi verður horft sérstaklega til húsnæðismála og framtíðarsýnar um uppbyggingu íbúða fyrir eldri borgara og uppbyggingu úrræða tengdum öldrunarþjónustu.
Öldungaráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkir að beina því til bæjarstjórnar að gaumgæfa ástand húsnæðismála eldra fólks í svetiarfélaginu og meta líklega þörf á hentugu húsnæði fyrir eldra fólk næstu 15-20 árin. Í þessu sambandi er átt við hæfilega stóra eignar- og leiguíbúðir, þjónustuíbúðir og rými á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Áhersla er lögð á að þessi athugun verði unnin samfara og í tengslum við endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélgsins, sem nú stendur yfir.
2.
Fjárhagsáætlun 2025
Málsnúmer 202408025
Sigurjón Andrésson mætti á fundinn og gerði grein fyrir framkvæmdaáætlun næstu ára og helstu lykilþáttum fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins.
Sigurjón fór yfir kynningu á fjárhagsáætlun næsta árs, framkvæmdaáætlun næstu ára og stöðu framkvæmda sem eru í vinnslu.

Öldungaráð þakkar Sigurjóni bæjarstjóra fyrir góða yfirferð.
3.
Framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 202306046
Málið var til umfjöllunar á 15. fundi öldungaráðs þar sem óskað var eftir að það kæmi aftur á dagskrá á 16. fundi öldungaráðs og farið yfir stöðu framkvæmda. Sigurjón Andrésson bæjarstjóri mætti á fundinn og gerði grein fyrir stöðu framkvæmda og næstu skrefum.
Sigrjón fór yfir stöðuna við framkvæmd hjúkrunarheimilisins Skjólgarð. Tafir hafa orðið á framkvæmdum og ljóst að þeim líkur ekki á áætluðum tíma.

Öldungaráð þakkar Sigurjóni fyrir yfirferðina.
4.
Framkvæmd: Sindrabær breytingar 2024
Málsnúmer 202406005
Framkvæmdir við endurbætur á Sindrabæ eru í gangi og miðar vel áfram. Sigurjón Andrésson mætir á fundinn og gerir grein fyrir þeim breytingum sem unnið er að og hvernig framkvæmd vindur fram.
Sigurjón Andrésson fór yfir stöðu framkvæmda í Sindrabæ. Framkvæmdir ganga vel og eru á áætlun. Verið er að ganga frá kaupum á öllum búnaði og stefnt að því að aðstaða í húsinu verði til fyrirmyndar og eins og best verður á kosið.
5.
Samningur við Félag eldri Hornfirðinga
Málsnúmer 202412031
Unnið hefur verið að endurnýjun samstarfssamnings Sveitrfélagsins Hornafjarðar og Félags Eldri Hornfirðinga. Drög að nýjum samning eru hér með lögð fyrir öldungaráð til yfirferðar.
Á dögunum var gerður nýr samningur við Félag eldri Hornfirðinga sem bíður undirritunar. Framlag sveitarfélagsins var hækkað og stefnt er að því að vinna að heildarhönnun jarðhæðar Ekrunnar vegna fyrirhugðara endurbóta ásamt aðstöðu dagþjónustu og félagsaðstöðu Félags eldri Hornfirðinga.